Vesturland - 01.10.1971, Qupperneq 4
r
4
*/ fflfiH® alésmftsxjm satieFssmsisxmma
Útgefandi: Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Vest
fjarðakjördæmi.
Blaðnefnd: Guðmundur Agnarsson, Bolungarvík, Halldór
Bernódusson, Suðureyri, Sigurður Jónasson, Patreksfirði,
Sigurður Sv. Guðmundsson, Hnífsdal, Úlfar Ágústsson, Is.
Ábyrgðarmaður: Finnur Th. Jónsson
Afgreiðsla: Uppsölum — Sími 3062.
Prentstofan ísrún hf., Isafirði.
____________—--------------------------—-------------—
Viðtaorf íii foiksíióttans
Á framboðsfundinum sl. mánudagskvöld mátti heyra lang-
ar harmatölur sumra ræðumanna um fólksflóttann frá Vest-
fjörðum og héðan úr bænum.
Vinstrimenn hér á Vestfjörðum hafa löngum haft þessi
mál á oddinum, og vissulega er það sárgrætilegt, hversu
margir hverfa héðan að vestan til þéttbýlisins við Faxaflóa.
Þessum fólksflótta valda ýmsar þjóðfélagslegar og persónu
legar ástæður, sem of langt yrði að rekja hér.
í tíð Viðreisnarstjórnarinnar voru mörkuð þáttaskil í
þessum málum með hinni víðtæku Vestfjarðaáætlun í sam-
göngumálum, sem var upphafið að straumhvörfum í lífi
Vestfirðinga.
Viðreisnarstjórnin vildi spyrna við fótum og hófst handa
í samgöngumálunum og undirbjó frekari áætlanagerð í
félags-, atvinnu-, og menningarmálum.
Á þeim árum, sem Vestfjarðaáætiunin var að hefjast
og boða ný viðhorf í byggðastefnumálum, mátti heyra sí-
felldar úrtölur og harmagrát vinstrimanna, og þeir halda
honum áfram.
Þeir gæta þess ekki, að þessar úrtölur hafa haft mjög
lamandi áhrif á það fólk, sem í eðli sínu vill halda kyrru
fyrir á æskustöðvunum, en missir kjarkinn þegar málaðar
eru jafn dökkar myndir af ástandinu og vinstrimenn hafa
gert á undanförnum árum.
Hér í bæ er sífellt talað um það að þessi eða hinn sé
að flytja úr bænum. Stundum er verið að tala um að þessi
eða hinn sé að flytja úr bænum í þrjú eða fjögur ár, og
hvað gerist. Sá umtalaði flytur loks úr bænum.
Á sama tíma heyrist aldrei á það minnzt, að eitthvað
fólk hafi flutt í bæinn, meira að segja fólk úr þéttbýlinu
á Faxaflóasvæðinu, og jafnvel ísfirðingar, sem flutzt höfðu
á brott úr bænum suður, en komizt að þeirri niðurstöðu, að
þar væri ekki endilega sú Paradís á jörðu, sem af væri
látið, en að heima væri bezt.
Á meðan bölsýnismenn og úrtölumenn ráða ferðinni, er
ekki von á góðu. Réttara er að taka undir orð Högna
Þórðarsonar á framboðsfundinum er hann ræddi þessi mál:
„Við skulum gera okkur grein fyrir aðsteðjandi erfið-
leikum en ekki mikla þá fyrir okkur að óþörfu, heldur
snúast við vandanum eins og mönnum sæmir."
„Þarna er verðugt verkefni fyrir unga fólkið. Vekið
upp hreyfingu í bænum. Takið alltaf jákvæða afstöðu
til mála bæjarfélagsins og dragið fram björtu hliðarnar.
Það eru menn með þessu hugarfari sem skipa framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar á
sunnudaginn.
Það eru slíkir menn, sem eru þess umkomnir, að taka
að sér ábyrga og trausta forystu bæjarmálanna, og leiða
bæjarfélagið fram til betri tíma, vaxtar og velsældar.
Á kjördegi hafna kjósendur bölsýnis- og úrtölumönnum,
en fylkja sér um D-listann, ^em vill vinna að jákvæðri lífs-
viðhorfum og fegurra mannlífi „í faðmi fjalla blárra.“
Anægjuleg Sieimsókn til Isafjarðar
Danska eftirlitsskipið Ingolf,
skipherra Bonde-Petersen or-
logskaptajn, kom í þriggja
daga vináttuheimsókn til ísa-
fjarðar sl. mánudag.
Skipið kom hingað beint
frá Angmagsalik í Grænlandi
en hefur verið fjóra og hálf-
an mánuð við eftirlitsstörf á
Grænlandi.
Á skipinu eru 17 liðsfor-
ingjar úr danska sjóhernum
og liðlega sjötíu sjóliðar, sem
nú voru að ljúka eins árs
herskyldu sinni.
Ræðismaður Danmerkur hér
á ísafirði, frú Ruth Tryggva-
son, hafði mestan veg og
vanda af móttöku hinna
dönsku gesta. Á mánudags-
morgun fylgdi hún skipherr-
anum á fund Jóns Guðlaugs
Magnússonar bæjarstjóra, og
færði skipherrann bænum að
gjöf fána skipsins.
Um kvöldið hafði frú Ruth
boð inni fyrir yfirmenn skips
ins og ýmsa ísfirzka gesti;
bæjarfógeta, bæjarstjóra og
bæjarráð o.fl.
Morguninn eftir bauð skip-
skipherra bæjarfógeta, bæjar-
stjóra og ræðismanni til
hádegisverðar. Þann dag var
efnt til skemmtiferðar inn í
Skóg, að rafstöðinni og upp
á Breiðadalsheiði fyrir skip-
verja og einnig skoðuðu þeir
Byggðasafnið.
Þá um kvöldið hafði skip-
herra boð inni um borð í her-
skipinu, sem lá við festar á
Prestabugt, og var þangað
boðið mörgum gestum úr
bænum.
Síðdegis á miðvikudag
kepptu dönsku sjóliðarnir í
knattspyrnu við úrvalið ÍBÍ
á vellinum á Torfnesi, og nú
lágu Danir í því —- 8:0 í
fjörugum leik.
Á miðvikudagskvöld hafði
ræðismaðurinn kaffiboð fyrir
skipherra og aðra yfirmenn á
Ingolf, en skipið fór héðan
nokkru eftir miðnætti.
Staksteinar
EINS FLOKKS KERFI
Kommúnistar verða stund-
um broslegir þegar þeir þykj-
ast vera að þvo af sér daun-
inn, sem leggur af einræðis-
stjórnarfari kommúnista, hvar
sem þeir hafa komizt til
valda. Þetta sannaðist á ein-
um frambjóðanda kommún-
ista á framboðsfundinum,
sem þótti það voðalegt, ef
Sjálfstæðisflokkurinn fengi
meirihluta í bæjarstjóm ísa-
fjarðar, því að þá væri „uppi
eins flokks kerfi eins og í
Sovétrík junum. ‘ ‘
TIL JÓNASAR
Jónas Helgason saggi á
framboðsfundinum, að Guð-
mundur H. Ingólfsson hefði
„starfað dyggilega að sveitar
Bridgemót Vestfjarða var
haldið á ísafirði um síðustu
helgi. Var þar bæði sveita-
keppni og tvímenningskeppni.
Keppnisstjórar voru þeir Ein-
ar Valur Kristjánsson og
Tómas Jónsson. Forseti
Bridgesambands Vestfjarða,
Birgir Valdimarsson, setti
mótið og bauð keppendur
velkomna, en á mótinu
kepptu átta sveitir frá Þing-
eyri, Suðureyri, Bolungarvík
og Isafirði.
í sveitakeppni urðu úrslit
þau, að Vestfjarðameistari
varð sveit Gunnars Jóhanns-
sonar, Þingeyri, með 1092
stig. Sveitina skipa auk Gunn-
stjórnarmálum."
Er það ekki aðalatriðið,
Jónas?
Ekki gekk rófan
Það er broslegt að lesa
blöð vinstriflokkanna um
bréfaskriftir og stefnumót,
sem fóru fram þeirra á milli
í þeim tilgangi að koma sam
an einum sameiginlegum fram
boðslista. í þessum skrifum
ganga klögumálin á víxl.
—Það er þér að kenna, að
ekki varð einn listi, nei, það
er þér að kenna en ekki mér.
Þetta eru innihaldslitlar
umræður, sem minna á Ein-
bein, Tvíbein, Þríbein og Fjór
bein þegar þeir toguðu í róf-
una og ekki gekk rófan.
ars þeir Tómas Jónsson, Jón-
as Ólafsson og Guðmundur
Friðgeir Magnússon.
Önnur varð sveit Páls Ás-
kelssonar, ísafirði með 1063
stig og þriðja sveit Kristjáns
B. Guðmundssonar, Suður-
eyri, með 1036 stig.
í tvímenningskeppni voru
23 pör og var keppt í tveim-
ur riðlum. Úrslit urðu þau,
að Vestfjarðameistarar urðu
þeir Jónas Ólafsson og Guð-
mundur Friðgeir Magnússon,
í öðru sæti urðu Hermann
Guðmundsson og Guðmundur
Elíasson, Suðureyri, og þriðju
í röðinni urðu Einar Árnason
og Ólafur Oddsson, ísafirði.
RÖDD MEISTARANS
Mönnum kemur saman um
að Sverrir Hestnes, efsti mað
ur á lista Hannibalista, hafi
tekizt vel að lesa ræðuna,
sem hann fékk til flutnings
á framboðsfundinum á mánu
dagskvöldið. Ætlunin mun að
gefa hana út undir höfundar-
nafninu: „His Master's Voice“
ÍGIðiárúður
Þegar líður að kosningum
geysast fram á ritvöllinn
karlar og konur með brenn-
andi áhuga á málefnum
bæjarfélagsins. Bent er á
ýmis mál og framkvæmdir,
sem nauðsynlegt er að leysa.
Þetta er góðra gjalda vert.
Hitt er öllu alvarlegra, að
flest af þessu fólki kemur
hvergi nærri þessum málum
allt kjörtímabilið, hvorki í
nefndum bæjarstjórnar eða í
menningar- og líknarfélög-
um, sem að framkvæmd mál-
anna vinna.
Næst þegar dregur að
kosningum, og flokkurinn
þarf á að halda, er gamla
platan spiluð á ný með við-
eigandi viðaukum.
Lesið t.d. greinarnar og
viðtölin með glansmyndunum
í Isfirðingi og Vestra.
Það er heldur betur gagn
í þessu liði — eða hvað?
Bátur til sölu
M/b SVANUR ÍS-74, 10
lestir með 36 ha. Listervél
er til sölu.
Upplýsingar veitir
Jónatan Arnórsson
Sími 3209 — ísafirði.
Þingeyringar sigorsæiir
á Bridgemóti Vestfjarða