Búnaðarrit - 01.06.1969, Blaðsíða 33
NAUTGRIPASÝNINGAR 283
I. verðlauna viðurkenningu til að koma til greina, og
var það skilyrði einnig í eldri reglum.
Að þesu sinni var gert aðvart um fjórar kýr, er til
álita kæmu að liljóta heiðursverðlaun, tvær í Hraun-
gerðishreppi, eina í Ásalireppi og eina í Hrunamanna-
hreppi. Ein þessara kúa liafði þó ekki skilyrði til þessa,
þar sem ein af dætrum liennar, sem hent var á, var á
bæ, sem stendur utan við skýrsluhald um afurðir, og
önnur náði ekki viðurkenningu. Hinar tvær hlutu heið-
ursverðlaun, og verður þeirra nú getið að nokkru.
1. Skrauta 43, Ágústs Þorvaldssonar, Brúnastöðum í
Hraungerðishreppi, er fædd 6. maí 1954. Faðir hennar
var Austri S57, lireinræktað Mýrdalsnaut, er áður er
minnzt á og notað var í Hraungerðishreppi. Austri var
kynfastur með tilliti til ágætrar byggingar og þroska og
reyndist vel. Skrauta 43 var fyrsti kálfur Bröndu 39,
Reppsdóttur, er var felld á miðjum aldri, en móðir
Bröndu var undan I. verðlauna gripum í báðar ættir.
Skrauta hafði hlotið I. verðlaun af 2. gráðu árið 1963
og hlaut sömu viðurkenningu nú. Hún er afar vel byggð,
hlaut 83,5 stig fyrir byggingu, en er þó bógsigin. Afurðir
hennar eru sérstaklega jafnar frá ári til árs, enda kýrin
tímasæl. Hvin bar 1. kálfi 30. júní 1956 og í 12. sinn 13.
júlí 1967. Hins vegar hafði mjólkurfita lækkað lítið eitt
næstu árin á undan sýningunni, en það lagaðist aftur
sýningarárið. 1 árslok það ár hafði liún mjólkað að
meðaltali á ári í 11,5 ár 4037 kg með 3,97% mjólkur-
fitu, sem svarar til 16027 fe.
Með Skrautu voru sýndar 4 dætur hennar á Brúna-
stöðum, en geta má þess, að tvær dætur hennar að
auki eru utansveitar og ekki á skýrslum nautgriparæktar-
félaga. Þrjár dætur Skrautu hlutu I. verðlaun og hin
fjórða III. verðlaun. 1 eftirfarandi töflu er greint frá
faðerni þeirra, meðalársafurðum og viðurkenningu: