Búnaðarrit - 01.01.1941, Síða 8
2
BÚNAÐARRIT
Fyrverandi stjórnarnefndarmaður Bf. ísl. Jón
Jónsson, óðalsbóndi í Stóradal andaðist 9. des. 1939,
55 ára að aldri. Jón í Stóradal var maður prýðilega
gefinn, harðfyiginn og duglegur. Hann hafði um langt
skeið staðið í fylkingarbrjósti þeirra manna, er af
mestum áhuga og dugnaði höfðu barizt fyrir fjöl-
mörgurn áhuga- og framfaramálum bænda, bæði á
Alþingi og heima í héraði. Bændastétt landsins hefir
misst þar, á miðjum aldri, einn sinn bezta fulltrúa
og' þrautseigasta vökumann.
Starfsmenn og starfsgreinar.
Hér skulu taldir þeir menn, sem gegnt hafa störf-
um fyrir Búnaðarfélag Islands tvö undanfarin ár, eða
starfað undir yfirumsjón félagsins, þótt ekki séu þeir
fastráðnir starfsmenn þess.
1. Steingrímur Steinþórsson, búnaðarmálastjóri,
hefir verið aðalframkvæmdastjóri félagsins.
2. fíjaldkeri félagsins. Theodór Arnbjörnsson, sem
gegnt hafði gjaldkerastörfum fyrir félagið, and-
aðist 5. jan. 1939. Theodórs hefir verið minnst
áður, svo að það verður ekki gert hér. En liinn
mesti vandi barst félaginu að höndum, þar sem
gjaldkerinn féll frá, í miðju ársuppgjöíinu.
Á fundi (5. jan. réði stjórnin Odd Jónsson,
skrifstofustj. í Mjólkurfélagi Reykjavíkur, til þess
að gegna starfi gjaldkera, til bráðabirgða. Tók
liann við sjóði félagsins, að viðstöddum hinum
stjórnskipaða endurskoðanda félagsins, Jóni
skrifstofustjóra G.uðmundssyni. Gerði Oddur sið-
an upp reikninga félagsins, fyrir árið 1938. Síðar
réðist svo, að Oddur Jónsson gegndi gjaldkera-
störfum til ársloka 1939. Rækti hann starf sitt
með mikilli alúð og trúmennsku. Vil ég fyrir hönd
Búnaðarfélagsins færa honum beztu þakkir fyrir