Búnaðarrit - 01.01.1941, Page 12
6 B Ú N A Ð A R R I T____
ustu skýrslu um störf skrifstofunnar, að öðru leyti,
sem að mestu hafa verið hin sömu og þar er lýst.
Búnaðarþing 1939.
Samkvæmt ályktun félagsstjórnarinnar og tilkynn-
ingar til búnaðarþingsfulltrúa, dagsettri 28. des. 1938,
var Búnaðarþing kvatt saman lil funda í Reykjavík,
laugardaginn 4. febr. 1939. hingslit fóru fram 8.
inarz og hafði þingið þá staðið í 33 daga.
Um störf þingsins að öðru leyti og afgreiðslu þeirra
mála, er það tók lil meðferðar, vísast til Búnaðar-
þingstíðinda, sem eru prentuð í 53. árg. Búnaðarrits-
ins, svo og skýrslu um afgreiðslu mála frá Búnaðar-
þingi, sem hefir verið útbýtt vélritaðri til fulltrúa
þingsins.
Hér þykir rétt að drepa á eitt atriði, varðandi
prentun Búnaðarþingtíðinda. Síðasta Búnaðarþing
samþykkli tillögu þess efnis, að Búnaðarritið skuli
minnkað, starfsskýrslur dregnar saman, en prentun
Búnaðarþingstíðinda hætt. (Sjá hls. 32, Til Búnaðar-
þings 1939). Nú er það fyrst við þessa samþykkt að
athuga, að í II. gr. laga Búnaðarfélags íslands er
ákveðið að: „Fundargerðir Búnaðarþings, samþykkt-
ir, tillögur og nefndarálit skuli birtast í Búnaðarrit-
inu.“ í annan stað virtist stjórn félagsins, að sjálf-
sagt væri að hirta reikninga félagsins og helztu sam-
þykktir þingsins, þar sem annað væri tæplega sæm-
andi fyrir jafn voldugan félagsskap og Búnaðarfélag
íslands er. Á stjórnarfundi 24. maí 1939 var þess-
vegna samþykkt að birta í Búnaðarritinu fjárhags-
áætlun félagsins, reikninga þess, ásamt stuttu yfirliti
yfir afgreiðslu helztu mála, er samþykkt voru. Þetta
hefir síðan verið gert. Aðeins birtar samþykktir Bún-
aðarþingsins, en prentun allra fylgiskjala s. s. erinda
er Iögð voru fyrir þingið, greinargerðir með tillögum
o. 11. var sleppt.