Búnaðarrit - 01.01.1941, Síða 26
20
BÚNAÐARRIT
Hólmgeirsson, stjórnaði skrifstofunni. Af hálfu Bún-
aðarfélagsins störfuðu þar lil ski])tis Pálmi Einars-
son, Páll Zóphóníasson, Gunnar Árnason og Stein-
grímur Steinþórsson.
Ráðningarstofan fékk lánað húsnæði hjá Vinnu-
miðlunarslcrifstofunni í Reykjavík, og var opnuð 9.
apríl, en störfum hætt 12. júlí, eftir liðlega þriggja
mánaða starfstíma. Skrifstofan var opin frá kl. (i til
9 síðdegis, alla virka daga nema laugardaga. Auk
þess höl'ðu bændur og verkal'ólk aðgang að skrifstofu
framfærslumálanefndar aðra tíma dagsins eftir vild,
því þar var daglega unnið úr gögnum ráðningarstof-
unnar. Var þetta allmikið notað.
Ráðningarstarl'semi ])essi var í byrjun allrækilega
auglsýt, bæði í blöðum og útvarpi. Auk þess voru
lengst af fastar auglýsingar í tveimur Reykjavíkur-
dagblöðunum.
Ráðningarstofa landbúnaðarins hafði samvinnu við
vinnumiðlunarslcrifstofurnar í kaupstöðum landsins,
á þann hátt að hún heindi þangað beiðnum um verka-
fólk í sveitir úr næsta umhverfi þeirra. Af þessu mun
hafa orðið góður árangur í Vestmannaeyjum og
Akureyri, en minni á hinum stöðunum.
Bændur sem sendu ráðningarstofunni beiðnir um
fólk í sveit, urðu alls 490 talsins. Eru þar með taldar
allmargar af þeim beiðnum sem komii fram í svar-
bréfum bændanna til Búnaðarfélags íslands s. I. vet-
ur, en voru nú ítrekaðar eftir að ráðningarstofan var
opnuð. Margar af heiðnunum frá s. I. vetri reyndust
uppfylltar þegar til kom, þar eð bændurnir höfðu
eðlilega notað tækifæri þau er þeim buðust, lil [>ess
að ráða sér fólk sjálfir án milligöngu.
Fólksbeiðnir frá þessum 490 bændum skiptust sem
hér segir:
Beðið var um:
240 stúllcur í vor- og sumarvistir.