Búnaðarrit - 01.01.1941, Page 33
B Ú N A R A R R I T
27
])ví var mælt fyrir uppþurrkun á Kolavatni er ligg-
ur á landmerkjum jarðarinnar. Þá voru gerðar mæl-
ingar fyrir framræsluskurðum í ræktunarlöndum
Eyrbekkinga og ákveðin og mæld á ný farvegsbreyting
Varmár í Ölvesi á 3 km vegalengd frá Þorleifslæk
upp á móts við Saurbæ.
I lok maí mánaðar fór ég til Vestmannaeyja til að
gera upp landamerki þeirra þjóðjarða, sem ekki verða
teknar til útskiptinga lil ræktunar, var gerður sér-
uppdráttur af landi hvers býlis. Býli þessi eru
23 að tölu og er heildar landstærð þeirra rúmir
206 ha.
Þá voru gerðar athuganir um ráðstafanir gegn land-
broti og uppblæstri og að gerður verði varnargarð-
ur fyrir byggingarlóðir og ræktunarlönd frá hafnar-
garði að Urðarvita. Lengd alls garðsins þyrfti að
vera 800 metrar, Þar af liggjá 300 metrar fyrir grunn-
lóðum bæjarins, en 500 metrar fyrir túnum og rækl-
anlegu landi. Var undirbúin áætlun um kostnað á
350 metra vegalengd er nam 24 þús. krónum og hefir
nokk.ur liluti þess verlcs verið framkvæmt, og er
unnið að áframhaldi jiess.
í júlímánuði framkvæmdi ég landskipti á Ólafs-
vallatorfunni. Til skipta komu 788 ha af landi jarð-
arinnar. Tún og engjar var áður skipt. Var landi
þessu skipt milli 6 ábúanda á torfunni.
Seinnihluta mánaðarins mældi ég fyrir flóðgörð-
uin á 10 jörðum, sem not hafa Ölvesáveitunnar á
cngjum austan við Sandá, og stærð áveitusvæðis
liverrar jarðar á jiessu svæði endanlega ákveðin.
Þann 25. júlí fór ég norður um land lil Fljótdals-
héraðs og Austfjarða. Framkvæmdi landaskipti á
Vallanesi. rJ'il skijita kom af landi jarðarinnar rúmir
■ 400 ha er skipl var milli 5 býla. Þriggja býla, sem
úður hafa verið í ábúð og tveggja nýbýla.
Ymsar smærri mælingar voru gerðar á Héraði, l. d.