Búnaðarrit - 01.01.1941, Page 34
28
B Ú N A Ð A R R I T
á Stóra-Bakka í Hróarstungu, á Eiðum, Egilsstöðum
og Höfða á Völlum, enn fremur á Norðfirði.
I byrjun ágúst mældi ég land jarðarinnar Snartar-
staðir við Kópasker. Skipti nýbýlinu Hvoli úr landi
jarðarinnar og framkvæmdi undirbúning að ræktun-
arskipulagi vegna þorpsins á Kópaskeri.
Þá var og mælt upp af landi Raufarbafnar nán-
asta umhverfi kauptúnsins. Mælt fyrir skurðakerfi á
40 lia landsvæði í flóa við Deildará, um 2 km frá
kauptúninu. Var mælingin gerð með lilliti til, að úr
ábúð yrði tekið landsvæði hátt á annað hundrað ha
til afnota fyrir kauptúnsbúa, en allt bið mælda land
hefir verið um 300 ha.
í lok ágústmánaðar byrjaði ég madingar í Keldu-
hverfi og var mælt allt land vestan Stórár og' Litlár
út til Víkingavatns, en þetta eru engjalönd og land
sem til mála getur komið að gera að engjum með
áveitu. Er ekki lokið að vinna lir þeim mælingum,
en land þetta er um eða yfir 2000 ba, en er aðeins
partur af stærra svæði sem unnið verður að mæling-
um á áfram þegar tími vinnst til.
Á vesturleið var framkvæmd útskipting á landi
fyrir nýbýli á Einarsstöðum í Reykjadal. Mæling
gerð við kvísl úr Skjálfandafljóti lil athugunar um
möguleika á aukningu vatnsmagns í henni vegna
laxgengdar. Mælt fyrir áveitu á Hörgshóli í Þverár-
Iireppi og l'ramræsluskurðum á engi á Sporði í Þor-
kelshólsbreppi í Húnavatnssýslu. Mælingum þessum
var lokið seinni hluta septembermánaðar.
Af öðrum mælingum er eftir j)elta voru gerðar
skal ])ess getið að undirbúin var framkvæmd fram-
ræslu á Snorragarði í Reykholti, er ég hefi hal't um-
sjón með framkvæmd á bæði árin.
2. Skrifstofustörfin hafa aðallega verið að vinna að
þeim verkefnuin, sem að framan er gelið. Fram-
kvæmdar matsgerðir, aðallega á vegum ríkisins. Var