Búnaðarrit - 01.01.1941, Page 36
B U Jí A Ð A R R IT
.‘50
Þann 25. júní fór ég vestur að Reykhólum í Barða-
strandarsýslu og mældi upp nokkurn hluta af heima-
landi jarðarinnar.
Unnið var að mælingu á þessum stöðum og öðrum
á Vestfjörðum:
1. Mælt upp Kaldrananesland og undirlendið inn
af Bjarnarfirði inn að landi Skarðs. Er mæling þess
gerð með tilliti til hagnýtingar þessa lands til rækt-
unar, Sérstaklega með tilliti til þess, ef stofnað yrði til
hátaútgerðar frá Kaldrananesi.
Skilyrði til ræktunar í Bjarnarfirði eru allgóð og er
þar jarðhiti nokkur á svæðinu sem mælt var.
Þá var og mældur upp partur af Kálaneslandi
við Hólmavík og unnið af því að koma á samkomu-
lagi við eigendur landsins um afhendingu ]>ess til
ræktunar fyrir íhúa Hólmavíkur.
Á ísafirði var mæld hlíðin milli Seljalands og kaup-
staðarins með tilliti til nýs skipulags um afnot þessa
lands lil ræktunar fyrir verkamenn á ísafirði.
Þá var mæld jörðin Neðri Arnardalur vegna fyrir-
hugaðra landskipta, nýbýlastofnunar og endurbyggðar
jarðar, er komin var úr fastri ábúð.
I Bolungarvik mældi ég upp rælctunarlóðir þorpsins,
og annað land, er hærinn hefir umráð á til ræktunar.
Þá fór ég lil Þingeyrar í Dýrafirði, til athugunar á
frainkvæmdum á Söndum, er áður höfðu verið lögð
drög að ræktunarskipulagi fyrir.
Framkvæmdum á þessu er mjög ábótavant, bæði
hvað framræslu og fyrirkoinulagi viðvíkur, og litt farið
eftir þvi, sem ákveðið hafði verið og hlutaðeigendur
gengizt undir að fylgja, er ríkið afhenti kauptúninu
Sanda til afnota.
Frá Vestfjörðum kom ég 28. ágúst og' fór aftur
áleiðis lil Austfjarða 2. september. Framkvæmdi mæl-
ingu á landi jarðarinnar Vattarnes vegna fyrirhug-
aðrar ræktunar í sambandi við smábátaútgerð.