Búnaðarrit - 01.01.1941, Page 50
44
B U N A i) A R B I T
Auk garðyrkjustarfanna, gróðursettu garðyrkju-
nemendurnir á annað þúsund furuplöntur í skóg-
inum, eins og vorið þar á undan.
í júlí fór ég stutta ferð lil Vestmannaeyja að at-
huga garðrækt þar og jurtasjúkdóma óg ennfremur
um Vestur-Skaftafellssýslu.
Seinni hluta október var ég sendur norður í Skaga-
fjörð, til að athuga skemmdir í kartöflum og skoða
jarðhitasvæðin þar í sýslunni. Flutti erindi um garð-
yrkju á Sauðárkróki og í Fljótum og ennfremur 6
erindi á Hólum í Hjaltadal eftir beiðni skólastjóra.
Kom heim úr þeirri ferð 15. nóvember.
1940.
Þann 15. janúar fór ég að heiman, í búnaðarnáms-
skeiðsleiðangur. Var á eftirtöldum stöðum og flutti
erindi um garðyrkju:
í Suður-Múlasýslu: Á Norðfirði, Mjóafirði, Seyðis-
l'irði, Ketilsstöðum, Djúpavogi og Múla i Álftafirði.
í Austur-Skaftafellssýslu: í Lóni, á Höfn, i Nesj-
um, á Mýrum, Suðursveit, Öræfum.
í Vestur-.Skaftáfelissýslu: í Múlakoti, Kirkjubæjar-
klaustri, Meðallandi, Vík í Mýrdal.
Kom heim 2. marz, eftir 48 daga. Fór aftur að
heiman 12.—20. marz, — vegna bændavilcu þeirrar
er Búnaðarfélag íslands lét halda í útvarpinu.
Þetta vor var afgreiðsla útsæðis af góðum kart-
öfluafbrigðum með mesta móti. Sendir voru alls um
12 hundruð smáskammtar út og fóru flestir þeirra
í Skagafjarðar- Suður-Múla- og Skaftafellssýslur.
Á garðyrUjunámsskeiði voru 11 nemendur, þessir:
Jóna Kristín Magnúsdóttir úr Reylcjavík.
Sigurður Hjaltason frá Hólum í Hornafirði.
Ingibjörg Daðadóttir frá Hólmlátri á Skógarströnd.
Oddrún Ólafsdóttir frá Mýrarhúsum, Akranesi.
Halldóra Ólafsdóttir frá Mýrarhúsum, Akranesi.