Búnaðarrit - 01.01.1941, Side 52
46
B Ú N A Ð A R R I T
Hin „frostþolnu" afbrigði voru nú setl niður í tæka
tíð, en á engan hátt virtust þau standa fremur hin-
um gegn frosti, eða jafnvel kalsatíð. Svo þeim fækk-
aði enn mjög, því svo mörg þeirra gáfu enga upp-
skeru, að nú eru aðeins eftir fáir tugir af þeim.
Þann 18. nóvember fór ég í búnaðarnámsskeiðs-
ferð til Norðurlands og flutti erindi um garðyrlcju
á fjórum stöðum í Eyjafirði og á 7 stöðum í Suður-
Þingeyjarsýslu. Kom heim úr því ferðalagi 21. des-
ember. Ragnar Asgcirsson.
Hrossaræktarráðunauturinn.
Eftir að ég hafði lokið kandidatsprófi í landbún-
aðarvísindum vorið 1939, fór ég að kynna mér nánar
hrossarækt nágrannaþjóða okkar eftir hvatningu
Steingríms Steinþórssonar, búnaðarmálastjóa, í þvi
augnamiði að taka að mér störf hrossaræktarráðu-
nautsins.
Kyrst réðst ég aðstoðarmaður A. L. Sþndergaards,
ríkisráðunauts Dana í rækt og kynbótum hinna léttari
hesta. (Frederiksborg-, Oldenborg-, Norska vest-
lands-, Enska fullblóðs- og Aineríska-brokkhesta).
Eg var með honum á dýrasýningum um sumarið, og
vann við færslu og útgáfu ættbókar (Registerstam-
bog) fyrir Frederiksborg- og Oldenborghesta.
í ágúst, þá um sumarið, lagði ég af slað í kynnisför
um Norðurlönd. Þegar ég kom aftur lil Danmerkur í
október, varð ég að hætta við fyrirhugaða ferð til
Þýzkalands vegna slríðsins, sem þá var skollið á. Ég
fór því heiin lil íslands þá um haustið og byrjaði að
starfa hjá Búnaðarfélagi Islands 1. jan. 1940.
Hrossasýningar voru haldnar árið 1939 í Borgar-
fjarðarsýslu, Mýrasýslu, Snæfellsnessýslu, Dalasýslu,