Búnaðarrit - 01.01.1941, Page 76
70
B Ú N A Ð A R R I T
var styrknum úthlutað samkvæmt þeim reglum sem
samþykktar voru á Búnaðarþingi 1939. Er nú lægri
hinn beini styrkur til búanna, en nokkru í'é varið til
þess að verðlauna þau búin sem ná mestuin árangri
í starfinu.
Sauðfjárræktarfélögin. Á þessu ári bættust við 2
sauðfjárræktarfélög, annað í Svalbarðsbreppi í Þislil-
firði og hitt í Andaldl í Borgarfirði. Auk þess er verið
að stofna sauðfjárræktarfélög víðar á landinu, bæði
í Austur-Skaftafellssýslu og Vestur-ísafjarðarsýslu.
Skozka féð. Ræktun skozka fjárins var hagað á
sama liátl og að undanförnu, nema hvað nokkrar
kindur al’ hreinræktaða stol'ninum voru fluttar til
Hvanneyrar og einangraðar þar. Er ætlunin að reyna
þar, hvort kynblendingar af skozku og íslenzku fé
kynnu að bafa meira mótstöðuafl gegn mæðiveik-
inni en hreinræktað íslenzkt fé og sömuleiðis hvort
kynblendingar þessir reyndust hraustar og afurða-
góðar kindur.
Afkoma sauðfjárræktarinnar. Veturinn 1939—40
var fremur mildur um land allt, nema á Norð-Auslur-
landi var allharðindasamt á útmánuðum. Vorið var
kalt fram í síðari hluta maí, en þá tók að gróa um
land allt. Fé gelck vel undan og lambahöld voru
ágæt. Sumarið var kalt og votviðrasamt. Það haustaði
snemma einkum á Norður- og Norðauslurlandi. Háðu
snjóar og illviðri fé þar. Dilkar reyndust vonum
freniur vel en þó nokkru Iakar en haustið 1939 eink-
um á Norðausturlandi.
Lungnabólga gerði víða allmikinn usla í íe vetur-
inn 1939—40 einkum á Austurlandi, annars var
heilsufar fjár gott, nema hvað mæðiveikin drap á
þeim svæðum sem hún geysar og garnaveikin olli
nokkru tjóni á þeim bæjum, þar sem hún hal'ði náð
verulegum tökum á fjárstofninum.
Rannsóknum á því, hvernig gengi að ala upp fé á