Búnaðarrit - 01.01.1941, Page 93
B Ú N A Ð A R R I 'i'
87
rækt hefii’ verið liin sama og áður, nokkrum tilraun-
uih bætt við í smáratúnrækt og með sáðtíma á gras-
fræi. Forræktunartilraun sú, sem getið er um i síð-
ustu skýsru minni, hefir nú á 5. túnári gefið svo að
segja jafnmikið hey af ha fyrir 3, 2 og 1 árs forræktun
eins og skyndiræklunin gaf í sumar sem sáð var í á
sama tíma vorið 193(5.
Virðast nvi áhrif forræktunarinnar vera alveg að
hverfa á 5. sumri frá sáningu grasfræsins. Tilraun-
in bendir eindregið í ]iá átt, að 1—3 ára forræktun
á móajörð sé betri fyrir túnrækt, en engin forrækt-
un. Ávinningurinn kemur fram á tvennan hátt. 1. For-
ræktunin getur gefið meira fóðurmagn af ha en tún-
rækt. 2. Túnið gefur meira hey eftir 1—3 ára for-
ræktun næstu 3—4 árin en skyndiræktun. Það er nú
hyrjað á nýrri tilraun með forræktun fyrir túnrækt
á mýri, verður siðar birt skýrsla um báðar tilraun-
irnar þegar ástæða þykir til ]iess.
Kartöfluræktin. Bæði árin hefir verið rekin kart-
öflurælct í nokkuð stórum stíl. Fyrra árið var kart-
öflulandið 1,4 ha, sem gaf af sér 300 tunnur af
kartöflum og svo 0,2 ha með öðrum garðjurtum.
í ár var kartöflulandið 1 ha og uppslceran aðeins
100 tunnur, er það fyllilega helmingi minni uppskera
en álíka landstærð gaf af sér sumarið 1939.
Tilraunir í kartöflurækt hai'a að mestu verið hinar
sömu og áður, þó hefir nokkrum lilraunum verið bælt
"við með áburð til kartöfluræktar.
Afbrigðatilraunir í kartöflurækt hafa verið all um-
fangsmiklar, hafa þær í ár gefið nokkuð skýr svör
um það kvaða tegundir reynast beztar i köldu sumri.
b’er hér á eftir árangur af 7 kartöfluafbrigðum í heitu
sumri (1939) og köldu surnri (1940).