Búnaðarrit - 01.01.1941, Page 101
U Ú N A « A R R I T
95
árnar, sérstaklega á Austfjörðum og Vestfjörðuin,
sem ég athugaði. Hafði ég ágætt tækifæri til að tala
við góða menn um veiðimálin á þessu ferðalagi. Kom
heim 5. nóv.
1940. — 10. febr. fór ég' til Reykjavíkur með'al ann-
ars til að gera skýrslu yfir fiskiræktarstarfsemina
undanfarin ár. — Var atvinnudeild háskólans að safna
þessum skýrslum til birtingar, bæði hér og í alþjóða-
skýrslum. Svo var lil ætlazt, að ég skoðaði hina stóru
nýju klakstöð Veiðifélags Árnesinga hjá Hvammi í
Hrunamannahreppi. En vegna þess að þá rak niður
álcafan snjó á Suðurlandi, varð ekki nf þessu. Fór ég
því heim 20. febr.
5. marz fór ég með ,,Súðinni“ austur á Húsavík
eftir ósk ríkisstjórnarinnar lil að mæta þar á fund-
um. Fyrst á nefndarfundi, er hafði undirbúning um
stofnun veiðifélags við Laxá og síðan á stórum fundi,
þar sem gengið yrði endanlega frá stofnun félagsins.
Á nefndarfundinum ínætti ég, en al' stofnfundinum
varð ekki sökum illra veðra.
Á meðan ég dvaldi á Grenjaðarstöðum, hafði ég gott
tækifæri til að fylgjast með rekslri klakstöðvarinnar.
Heim komst ég með Brúarfossi 20. marz.
2. apríl var haldinn stór undirbúningsfundur undir
stofnun veiðifélags við vatnasvæði Héraðsvatna.
Kosin var 7 manna nefnd til frekari undirbúnings.
Óskað hafði verið eftir af formanni Búnaðarsam-
hands Suðurlands, að ég mætti á aðalfundi þess, er
lialda skyldi 1. júní að Kirkjubæjarklaustri. 23. maí
fór ég til Reykjavíkur og þaðan með Steingrími Stein-
þórssyni búnaðarmálastjóra austur að Kirkjubæjar-
klaustri. Hafði hann einnig verið beðinn að mæta á
aðalfundinum.
Á fundinum flutti ég erindi um fiskiræktarmögu-
leika í Vestur-Skaftafellssýslu.
Þegar við komum lil baka, var haldinn einn fundur í