Búnaðarrit - 01.01.1941, Side 102
9(5
BÚNAÐARRIT
veiðimálanefndinni. Úr þessum Ieiðangri kom ég
5. júní.
13. júní fór ég austur að Fnjóská, til ])ess að flytja
i hana seiði. Að þessu unnu einnig tveir Englend-
ingar (sendiherraritarinn og aðalræðismaður Breta).
Vorum við í 3 daga að þessu, enda var farið mjög víða
með seiðin. Úr þessu ferðalagi kom ég 20. júní.
7. júlí fór ég í hringferð með ,,Esju“ í ýmsum er-
indum og að sumu leyli vegna fiskiræktarinnar, eins
og t. d. á Patreksfirði, Isafirði, Siglufirði, Seyðis-
firði, Norðfirði, Hornafirði og víðar.
28. júlí fór ég fram í Skagafjarðardali til að athuga
Ilofsá, svo og Reykjafoss, sem í ráði er að gera lisk-
gengann.
9. ágúst fór ég vestur að Laxá á Ásum. Óskaði stjórn
veiðifélagsins þess, að ég mældi það vatnsmagn, er
l'æri yfir stýfluna, og segði til um, hvort fiskinum væri
hætta búin af vatnsskorti. Þá var einnig ákveðið, að
ég mætli á fundi, sem hreppsnefnd Blönduóss og
stjórn l'iskiræktar- og veiðifélagsins Blöndu héldu til
að jat'na ágreining um veiði svo og tala um fram-
tíðarstarfsemi félagsins við Blöndu.
15. ágúst fór ég austur í Skaftafellssýslu, hafði
þessu ferðalagi verið lofað í vor á aðalfundi Búnaðar-
sambandsins. Hefi ég í „Tímanum" skýrt frá þessu
l'erðalagi. Kom heim 29. ágúst.
28. sej>t. fór ég suður að Hreðavatni í veg fyrir Dala-
og Hólmavíkurbíl. Var svo til ætlazt, að ég færi norð-
ur í Bjarnarfjörð til að skoða Bjarnarfjarðar- og
Goðadalsá, svo og lil að hafa tal af nolckrum mönn-
um á Hólmavík og víðar. í bakaleið kom ég við í
Reykjavík og var á fundi veiðimálanefndar.
18. okt. mætti ég á Blönduósi til að vinna að yfir-
mati á arðskrá fyrir veiðifélag Víðidalsár með þeim
Pálma Hannessyni rektor og Magnúsi Jónssyni hrepp-
stjóra á Sveinsstöðum.