Búnaðarrit - 01.01.1941, Side 106
100
6Ú NAÐARR1T
ú þeirri jörð, fór ég 7. ágúst þangað og víðar um v ■
Skaftafellssýslu.
Leiðvöllur er sérstæð jörð upp með Kúðafljóti að
austan. Er það sauðjörð góð, og silungsveiði er þar
talsverð. Uppblástur er þar mikill og' sandfok skemmir
lún og haglendi svo lil auðnar dregur, ef eigi verður
bráðlega að gert. Austan vindar valda mestu tjóni.
Landið skoðaði ég all nákvæmlega og mældi fyrir
girðinu, eins og hngaði til þá. Girða þarf ca. 12 km.
langa girðingu. Leiðvöllur stendur það hátt uppi i
hrauni, að þar er ekki hætta fyrir Kötluhlaupi. Bænd-
um hefir húnazt yel á Leiðvelli og er illt til þess að
vita, að jörðin leggist í eyði, en upphlásturinn er svo
mikill að hænuin og túni verður ekki hjargað, nema
með miklum tilkostnaði. Sandfok skemmir líka mikið
jarðirnar Staðarholt (Feðgár) og Hnausa. Töldu
hændur að sandfok á þær jarðir hefði aukizt, því vatni
úr Ásakvíslum, er áður varði lönd þeirra, var veitt frá.
Eins og að framan segir, voru sandsvæði girL 1939:
1. Hjá Sandgerði og Býjaskcrjuni í Mið-
neshreppi ca............................. 2400 m 30 ha.
2. Önundarstöðum i Austur-Landeyjahreppi 5000 - 00 -
3. Gunnarslioltsgirðingar stækkaðar ........ 14600 - 2000 —
Samtals var girt að nýju, girðingalengd 22,0 km.
Landstærð 2090 ha.
III.
Vorið 1940 voru viðgerðir mjög miklar á sand-
græðslugirðingunum, einkum í Rangárvallasýslu.
Höl'ðu þær slitnað afar mikið og gengið úr lagi. Það
var því mikil vinna við að koma þeim í ktg aftur.
Ekki var hægt að girða nein ný sandfokssvæði þ;tð ár,
því að girðingarefni fluttist nálega ekkert til landsins.
Gaddavir var nær því ófáanlegur, og afar dýr, á aðra
krónu kilóið, ef nokkuð fékkst,
Að melfræsáningu var unnið likt og vanalega, og