Búnaðarrit - 01.01.1941, Side 112
10(5
B Ú N A Ð A R R I T
sem á vísindamáli er táknað með IJH vatnsins. Sé PH
neðan við 7 er vatnið talið súrt og þar af leiðandi ó-
liolt fyrir lífið í því, en sé PH aftur á móti frá 8—9
er það talið mjög gott. Skaðaefni geta stundum verið
í vatninu svo sem járnsambönd og brennisteinsupp-
lausn. Þá hel'ur dýpið mikið að segja, þegar um er að
ra-ða orku til að framfleyta lífi. Venjulega eru fremur
grunn vötn (2—5 metra djúp) átuauðugri en djúpu
vctnin. Kemur það af því, að þau eru hlýrri og bjart-
ari. Aftur vofir sú hætta yfir þeim, að verða um of
súrefnissnauð ef langsamir hitar og logn ganga að
sumrinu. Það er á slíkum tímum, sem það fyrirbrigði
kemur fyrir að silungur gengur i þéttum torfum upp
í laeki og uppsprettur og er almennt kallaður hitasil-
ungur. Kemur þetta af því að súrefnisskortur er að
verða í vatninu, svo að fiskinum liggur við köfnun.
Sækir hann þá í kaldara vatn, sem eins og áður er
sagt inniheldur meira súrefni.
Lögun vatnsins hefur nokkur áhrif um gróðursæld
þess. Mjög vogskorin strönd er mun betri en slétt, þá
liggur meira land að vatninu, og síðast hefir það mikia
þýðingu, hvernig land það er, gróðurríkt og ræktað,
eða þá urð og órækt.
Þegar gróðurmikið land liggur að vatni, skola ár og
lækir og regnvatn ýmsum áburðarefnum út í vatnið.
En slík efni eru mjög gagnleg til viðhalds lífinu i því.
Líf það, sein fyrst myndast í vatninu og allt annað
byggist á, er nefnt svif (Planton). Vinnur það sama
hlutverk og blaðgrænan á þurrlendi, að binda kral't sól-
arinnar og breyta dauðum efnum í lífræn. Svifið er
tvennskonar, jurtasvif og dýrasvif. Það lifnar við
sumar og sól, þroskast og deyr og sekkur til botns án
afláts. Svo mikill getur Jiessi svil'vöxtur orðið í gróður-
ríkum vötnum og hita-tíð að vatnið taki á sig blágræn-
an eða gulgrænan lit. Er þó svifið ósýnilegt með beruin
augum. Á svifinu lil’a allskonar smá botndýr, svo sem