Búnaðarrit - 01.01.1941, Síða 116
110
BÚNAÐARRIT
A6 Hkindum eru það uppeldisskilyrði, sem hér koma
að einhverju leyti frain. Stóru árnar með stöðuvötn-
unum veita oft ágæt uppvaxtarskilyrði. Bæði hér og
erlendis er það haft fyrir satt og viðurkennt, sem
gamlir og eftirtektargóðir laxveiðimenn halda fram,
að þeir þekki laxinn i'ir hverri á, á svipaðan hátt og
þekkt verður fjárbragð á sauðfé margra bænda. T. d. má
þekkja Ölvesárlax, Þverárlax i Borgarfirði og Elliði-
árlax. Er þetta eitt af þeim stoðum. sem renna undir
þær skoðanir að laxinn haldi sig mjög að sínum upp-
vaxtarheimkynnum. Með klaki breytist þetta þar sem
seiði eru flutt úr einni á í ýmsar. Á tímabili var flutt
talsvert af seiðum úr Ölvesá í Elliðaárnar, enda er nú
svo komið, að mest ber á ölvesárlaxi, en Elliðaárlax-
inn er að smá hverfa. Sama er mér sagt um Laxá í
Kjós. Þangað ihefir verið flutt talsvert af seiðmn úr
Ölvesá.
Sannað er það erlendis, að lax er stærri í norðlæg-
ari ám en þeim suðlægari. T. <1. er greinilegur munur á
þessu í Noregi. í laxám syðst í Noregi, t. d. suður við
Kristjánssand, er lax fremur smár, en norður á Finn-
rnörk meirihlutinn stórlax. Ástæðan fyrir þessu er sú,
;;ð í norðlægari ánum dvelja laxaseiðin lengur i ánni
og lika lengur i hafinu og er því laxinn stærri Jiegar
hann gengur í árnar.
Það er oft langur tími frá því lax gengur í árnar
og þar til hann er tímgvunarfær. Allan þenna tíma
étur hann ekkert, en lifir á sjálfum sér og hefir þvi
ekki veitt af þeim holdum, sem hann safnaði i
hafinu.
Mjög er það misjafnt fyrir hverja á hvenær laxinn
hrygnir, getur það verið frá sept. og fram yfir nýjár.
Mun það vera á Norðurlandi frá sept. til nóvember, en
a Suðurlandi lrá október til desemberloka.
Það er eins og náttúran haí’i kennt þessum fiskiteg-
undum að haga sér eftir kringumstæðum. Lax hrygnir