Búnaðarrit - 01.01.1941, Page 137
B Ú N A }) A R R I T
131
2. Greenhart stengur, þær eru nokkru þyngri en verð-
ið er viðráðanlegt.
3. Bambusstengiir Whole-cane. Þetta eru ódýrustu
og léttustu stengur sem hægt er að fá, og geta
mjög vel dugað sem veiðistengur en þær þykja
ekki eins fínar.
Þeir sem búa við veiði-ána eða svo nærri að ekki
þarf að taka stöngina sundur til flutnings geta auð-
veldlega luiið sér til stöng með því að velja góðan
bambus af þeirri lengd, sem óskað er. Vefja á hana
hringa og setja sæti fyrir hjólið, sem er sett fast með
lausum hólkum „Iakkera" svo alla stöngina til að
vernda hana fyrir vatni.
Þegar nota á „spón“ „minnó“ eða maðk er beitt,
þarf hjólið að taka minnst 100—150 yards1) af línu.
Velja skal granna línu t. d. prawn 40—50 yards og
aftanvið ódýrari línu t. d. silki eða lín-„backing“2).
Auðvitað má nota sömu línu við flugu. En þó nota
veiðimenn aðrar tegundir „kastlínu" sem geta verið
afardýrar, er þá sjaldnast notað meira af þeirri línu
en 40 yards og þar aftan við 100 yards af ódýrari línu.
Sumir „flugu“-menn vilja hafa fremur eðlisþunga
kastlíríu, telja hana að ýmsu leyti betri til kasts, sér-
staklega í vindi.
1 flestum sportvöruverzlunum fæst ógrynni af alls-
konar flugum og öðrum slíkum laxveiðitækjum. Flest-
ir verða að láta sér nægja fáeinar, og vil ég að ráði
góðra veiðimanna nefna nöfn á nokkrum lielztu veiði-
flugum t. d. „Popham“ „Jock Scott“ og „Blaclc Doctor“.
Al' flugum með silfurbúk má nefna þessar: „Silver
Doctor", „Silver Gray“, „Silver Wilkinson“ og „Dusty
Miller“.
Taumurinn (öngultaumurinn) á að vera 2—3 yards
1) 1 yai'ds ~ 91,4cm.
2) Ég nota enskt niál og noi'n því ]>au eru almennt notuð
i verslunuin, sem hafa þessa hluti til sölu.