Búnaðarrit - 01.01.1941, Page 138
132
B Ú N A Ð A R R I T
6. mynd. Hnfltur til að binda i 7. mynd. Hnútur tii að
girniauga á taum eða tlugu. binda á flugu með stáiauga.
á lengd og er beztur úr einþættu fyrsta flokks girni, en
þttý er mjög dýrt. Nokkru ódýrara er 3 þætt girni.
Mjög er notað við laxveiði einfalt tilbúiö girni sem
selt er í 3 stærðum „Heavy“, ,,medium“ og „fine“ sjálf-
sagt er að athuga og endurnýja hnútinn við fluguna,
þar vill girnið helzt lýjast og getur slitnað á því augna-
bliki er síst skyldi.
Það er tills ekki þýðingarlaust hvernig flugan er
hnýtt á tauminn eða taumurinn við línuna. Hnútur-
inn þarf að vera leysanlegur og aldrei má endi standa
þvert frá hnút því hann gerir fyrirstöðu í vatninu og
fælir.
Hnútar þeir, sem sýndir eru á 6. og 7. mynd hafa
reynzt vel:
Flestir laxveiði hyrjendur álíta að einn höfuðkostur
laxveiðitækjanna sé mikill styrkleiki. Þetta er mikill
misskilningur, það eru einmitt átökin, sein verfeur að
forðast og þau verða aldrei mikil sé stönginni rétt
haldið. Það er ágætt l’yrir hyrjendur að prófa styrk-
leikann á Iaxveiðitækjum sínum með því að krækja
önglinum í krókinn á venjulegri fjaðurvog, spenna svo
stöngina sem unnt er, vogin sýnir fráleitt meira átak
en 2—4 kg.
Það þykir bera votl um góð og rétt handtök að vera
fljótur að ná fiskinum eftir að hann hefir tekið. Það
er gömul regla um meðaltíma að draga lax að vera
1 mínútu með enskt pund eða 10 mínútur við að draga
10 punda lax.
Þegar fiskurinn hefir bitið á, er stöngin sett í spennu
sem kallað er. Með vinstri hendi er stangarskaftinu