Búnaðarrit - 01.01.1941, Side 144
138
BÚNAÐARRIT
sem ])arí' til þess að einungis silfurtært vatn komi af
þeim. Þessi hrogn eru svo losuð i hreina blikkfötu eða
skólpfötu með vatni, og þannig cr farið með öll hrogn
sem frjóvguð eru i það sinn. Fatan með þvegnu og
frjóvguðu hrognunum er nú látin standa hreyfingar-
laus í nokkrar klukkustundir eða jafnvel yfir nóttina,
ef frjóvgað er að kvöldi. Því næst eru þau lögð niður
í klakkassana.
Við frjóvgun eru viðhafðar tvær aðferðir, þurr eða
vot. Hin þurra er það sem nú hefir verið lýst.
Vota fjóvgunaraðferðin er þannig, að hrogn og svil
eru látin huna í fulla vatnsfötu og hrært vel í og skol-
að síðan á sama hátt og áður. Þessi aðferð þykir ekki
nærri eins góð og hin, frjóvgast ekki eins mörg prósent.
Hrogn og svil tapa afarfljótt frjóvgunarkraftinum í
vatninu, sérstaklega svil, sem halda honum að eins í
nokkrar sekundur. Vota aðferðin er því að eins notuð
við að frjóvga úti i frosti.
Það hefir áður verið telcið fram að stærð klakhús-
ins yrði að miðast við möguleikana að ná í stofnfisk.
Með byggingarefnið verður að liaga sér eftir staðhátt-
um, þó mun ráðlegast að halda sér við steinsteypu,
þar sem þess er nokkur kostur.
Uppdráttur sá, er hér fylgir aftan við ritgerðina, er af
húsi, sem tekur sem næst 170.000 laxahrogn eða 250.000
silungahrogn. Vegghæðin er hæfileg 1% m frá gólfi,
sperrureist með tveim gluggum á þaki. Þakið er gott
að hafa úr bárujárni á rimlum og þakið yfir með torfi
til hlýinda. Gólfið er steypt með rennu eftir miðju og
hallast litið eitt að dyrum, þar sé niðurl'all og útrennsli.
Fyrir dyrum skal hafa 2 hurðir, gangi önnur út en hin
inn. Um vatnsleiðsluna skal búið á svipaðan hátt og
vanalega. Hlaðinn eða steyptur brunnur við uppsprett-
una með góðum hlemra yfir. Þaðan liggur svo 2" víð
rörleiðsla og kemur inn i húsið rúmlega meter frá
gólfi.