Búnaðarrit - 01.01.1941, Page 145
BÚNAÐARRIT
139
Við þann stofninn, er að uppsprettunni veit, er steypt
25 cm breið og meters djúp þró. Er henni skipt í þrennt
ineð 2 steinveggjum. Neðst á þessum skilrúmum eru 10
cm göt.. Þessi hólf eru nú fyllt, fyrst með smágrjóti %
uf dýptinni. Þá með smágerðum hefilspónum (spóna-
ull) þar til 15 cm eru eftir. Síðast er látið smágrjót
ofan á. Vatnið rennur svo niður miðhólfið gegn um
götin og upp hliðarhólfin og þaðan í klakkassana. t
þessar síur má einnig nota 2 eða 3 olíuföt, vel hrennd
að innan, en fremur eru þau óþægileg og taka mikið
rúm af húsinu.
Fyrir framan síurnar er settur 15 cm br. og 15 cm
djúpur vatnsskiptistokkur. Er hann gerður úr plægðum
borðum eða steyptur og sameinaður við hliðarhólfin
Jneð tveim 2" víðum rörstúfum.
Klakkassarnir geta verið tvenns konar, kaliforniskir
cða malarkassar.
Kaliforniski klakkassinn er þannig gerður: Fyrst er
Mníðaður 3 metra langur 75 cm br. og 15 cm djúpur
kassi úr lj4" plægðum borðum. Síðan er hann hólfað
Ur sundur í 14 jafn stór hólf. í þau er notað %" borð.
'verður þá stærð hvers hólfs 42X36 cm að innan máli.
bessi hólfakassi er nú settur niður láréttur í meters
hæð frá gólfi og tengdur við „vatpsskiptistokkinn" með
tveim 1" víðum rörstúfum. Til þess að vatn geti runnið
bóll' úr hólfi er gert 3 cm breitt og 2 cm djúpt skarð í
öll þverskilrúmin. Þá eru smíðaðir kassar 40X35 cm að
utanmáli, sem falla ofan i hvert hólf. Botninn er úr
þéttriðnu málmneti (nr. 20 og hafður 2 cm upp í
kassana. Neðan af þeim gaflinum, sem snýr á móti
straumnum, er tekin 2 cm. ræman sem stóð niður fyrir
Uctið. Getur þá vatnið streymt undir kassann upp gegn
uin botninn og yfir hinn gaflinn um lítið skarð, sem
þar er gert. Streymir svo vatnið undir næsta kassa
upp um botninn og svo koll af kolli.
Þetta er kölluð hin kaliforniska eða undirstraums