Búnaðarrit - 01.01.1941, Side 148
142
BÚNAÐAHR I T
iir fara augun aö sjást í hrognunum, þá eru þau komin
á það þroskastig, sem þau þola hezt allan l'lutning og
hnjask. Því er það mikið hyggilegra fyrir þá, sem
œtla sér að kaupa seiði að fá sér heldur „augnahrogn“
og klekja þeim svo sjálfir út í námunda við þann stað,
sem seiðin eiga að fara á.
Augnahrogn má flytja í vanalegum mjólkurflutnings-
fötum og má hafa allt að 2 lítra af hrognum í 10 litra
fötu. Skipta þarf um vatnið tvisvar á sólarhring. Einnig
má flytja þau í vanalegum niðursuðudósum úr gleri.
Eru þær þá stoppaðar ofan í kassa, sem vel er ein-
angraður fyrir áhrifum hita og kulda.
Dr. Knut Dahl hefir nýlega fundið upp handhæga
aðferð til að flytja og klekja út augnahrognum. Að-
ferð hans er í stuttu máli sii, að flytja þau i kali-
l'orniskum klakkassa, sem svo er notaður til framhald-
andi klaks, eftir að hann með hrognunum er kominn
á ákvörðunarstaðinn.
Eyrst er smíðaður ferhyrndur vatnsheldur kassi úr
%" borðum 30 X 30 cm, og 20 cm djúpur að innan-
máli. Innan í þennan kassa er svo smíðaður annar kassi
25X25 cm, og 10 cm djúpur, með málmneti í hotni;
hvílir hann á 4 cm listum, langsum i aðalkassanum.
Rörbútur er settur í gegn um háða kassagaflana, 1 cm
frá hrún, og málmnetsbót negld fyir. Lok er smíðað
yfir kassann og 1" gat borað á það yfir 5 cm hólfinu,
sem myndast milli gafla ytri og innri kassans, eins og
sjá má af meðfylgjandi teikningu.
Síðan eru tapparnir reknir í bæði götin, kassinn
fylltur al' vatni og hrognin látin í innri kassann
(ca. 4000 í jiessa stærð). Lokið er rækilega skrúfað
á og hafðar þéttiræmur í milli þess og kassabrúnar-
innar, svo að allt verði örugglega vatnshelt. Þá er
kassinn sloiipaður ofan í stærri kassa og haft hey eða
hálmur allt í kring, svo frost eða hiti geti ekki haft
áhril'.