Heilbrigðismál - 01.01.1952, Qupperneq 4
4
FRÉTTABRKF UM HEILBRIGÖISMÁL
íorðast þessar og aðrar vanskapanir þar£ konan að fara gætilega með sig.
Ekki aðeins síðustu mánuði meðgöngutímans, heldur fyrst og fremst á
fyrstu vikum og mánuðum meðgöngutímans. Þá á hún að halda sig frá
margmenni og eftir mætti frá öllum, sem geta smitað Iiana af umgangs-
kvillum. Hún þarf að nærast vel og forðast tóbak og áfengi, einkum þó
tóbak, sem gera verður ráð fyrir að liafi ill áhrif á fóstrið, eins og hvert
það eitur sem veldur samdrætti í æðum og því hætt við að það geti haft
slæm áhrif á næringu fóstursins.
Það verður aldrei of rækilega brýnt fyrir konum, að ef þær vilja eiga
hraust og efnileg börn þurfa þær að hyggja vel að sér á meðgöngutím-
anum. Undir meðferð konunnar á sjálfri sér er það komið hvernig
barnið hennar verður búið undir lífsbaráttuna og það er á liennar valdi
að gera grundvöllinn traustan.
Alþjóðasambandið gegn krabbameini
Union Internationale contre le Cancer heitir félagsskapur sá, sem
berst gegn krabbameini um allan heim. í honum eru krabbameinsfélög
40 ríkja. Sérstök rannsóknanefnd er starfandi innan þessa félagsskapar
og er ráð íyrir gert að meðlimir hennar hittist annað hvert ár. Fulltrúi
Islands hefir aðeins getað mætt á einum af þrem fundum sem til þessa
hafa verið haldnir. Eins og kunnug er skortir aldrei fé þegar hernaður
og mannvíg er annarsvegar, en hver eyrir sparaður í styrjöldinni gegn
sjúkdómum. Hefðum við þó mátt eiga sérstöðu um slík mál, þjóð sem
aldrei hefir lagt fram fé til mannvíga, með því að leggja nokkuð af
mörkum til hernaðarins gegn krabbameini og sýna þannig hug okkar
til þess að vernda mannslíf í stað þess að vinna að tortímingu þeirra.
Við gátum engan fulltrúa sent til Lissabon á krabbameinsráðstefnuna,
sem haldin var þar í desember, en tveim mánuðum seinna gátum við
sent þrjá menn á hermálaráðstefnu þangað.
Á þessum fundum gera meðlimirnir grein fyrir ]>ví sem markverðast
er um krabbamein og verður hver að koma með skýrslu frá sínu landi,
þar sem tekið er fram allt sem markverðast getur tali/.t um rannsóknir
á krabbameini í hverju landi fyrir sig.
Á fundinum í Lissabon var meðal annars gerð grein lýrir krabba-
meini í lifur, sem reynist vera mjög algengt í Afríku og hafa Frakkar
gert miklar rannsóknir á því í löndum sínum þar.
Prófessor Haddow, sem er einn af kunnustu vísindamönnum Breta á
sviði krabbameinsrannsókna og sá sem varð fyrstur til að hefja liormón-