Heilbrigðismál - 01.01.1952, Síða 6
6
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
ítrekaðir holskurðir gegn krabbameini
O. H. Wangensteen er meðal allra fremstu skurðlækna í Bandaríkj-
unum og hefir lagt sérstaka stund á að nema á brott sár og krabbamein
í maga og görnum. Hann er prófessor í handlækningum við háskólann
í Minneapolis og yfirlæknir við skurðlæknadeild stærsta sjúkrahússins
þar. í tímaritinu Journal-Lancet, sem gefið er út í Minneapolis, gerði
liann í ágúst síðastliðnum grein fyrir sextugri konu, sem liann hefir
Iiaft undir hendi og er saga hennar að ýmsu leyti athyglisverð.
Þegar konan var skorin upp fannst stórt krabbamein í ristli og hafði
jDað borizt til margra eitla í umhverfinu. Allt var Jretta skorið í burtu.
Næstu 27 mánuði var konan opnuð alls fimm sinnum og í öll skiptin
nema síðast fannst að krabbameinið hafði tekið sig upp, sýnilega vegna
þess að það var komið lengia en unnt var að sjá með berum augum, en
ávallt voru allir eitlar teknir sem nokkur vöxtur sást í. Talið er h'klegt
að þessi kona sé nú læknuð af sínu krabbameini.
Wangensteen er farinn að Iiafa það fyrir reglu að opna krabbameins-
sjúklinga sína aftur til eftirlits; einkum þá sem hafa meinsemdina í
ristlinum. Af 17 sjúklingum með krabbamein í ristli sem allir höfðu
fengið meinsemdina í eitlana, eru 11 nú lausir við krabbameinið.
Wangensteen og aðstoðarlæknar hans eru nú farnir að gera mun meira
að því en áður að taka allt útsæði sem Jieir sjá og tiltækilegt Jrykir að
fjarlægja úr kviðarholinu, láta síðan líða nokkurar vikur eða mánuði
og opna sjúklinginn aftur og tína Jrá aftur úr honum það sem síðan
kann að hafa vaxið.
Þetta hefir til skamms tíma Jjótt vonlaust verk, að ætla sér að uppræta
krabbamein sem farið er að sá sér út, en hver veit nema þrautseigjan
eigi efir að vinna marga sigra fyrir slíka sjúklinga? Þeir einir sigra sem
reyna.
Heiladinguls-græðing
hefir verið reynd í Þýzkalandi gegn ólæknandi krabbameini. H. Gum-
rich skýrir frá reynslu sinni af slíkum aðgerðum í ágústhefti tímaritsins
Chirurg, sem gefið er út í Heidelberg. Síðastliðin tvö ár kveðst Jressi
læknir hafa grætt heiladingtd úr kálfi í 118 sjúklinga, sem Jrjáðir voru
af kvölum. F.kki má líða lengur en 30 mínútur frá Jiví að kálfinum er
slátrað og þangað til heiladingullinn úr honum er græddur í magál