Heilbrigðismál - 01.09.1977, Blaðsíða 3

Heilbrigðismál - 01.09.1977, Blaðsíða 3
Meáal efnis: Hrsyllng eem beilsubác Myndirnar á forsíðu þcssa hlaðs crn It knar í Sundlau|>iiniiin i Laugardal í Kcykjavik (>j> tcn)>jast j>rcin iini álirif hrcyfin|>ar oj> útiveru á licilsuna. Sjá hls. 18. Myndir: Gunnar V. Andrésson. EÐLILEGT LÍF 5 HEILAHIMNUBÓLGA 9 AUKUM SAMVINNUNA II RANNSÓKNIR 13 RAUÐIR HUNDAR 17 KOSTIR HREYFINGAR 18 LEITAÐ SVARA 21 MAGAKRABBAMEIN 23 þvagfærasýkingar 27 erlendar FRÉTTIR 31 ENDURBIRT EFNI 33 3. tbl. 25. árg. Júlí — septcmbcr 1977. 123. hefti frá uppliafi. Umliverfisorsakir krabbameins í grein Gunnlaugs Geirssonar yfirlæknis i þessu hefti. „Nýmæli af vettvangi krabbameinsrannsókna", er gefið yfirlit um ýmsa þætti í nútímarannsóknum á orsökum og eðli krabbameins. Þar kentur fram að enda þótt margt sé enn á huldu unr þær lífefnafræðilegu breytingar sent liggja til grundvallar því að fru.mur mannslíkamans taka til að vaxa hömlulaust og nrynda illkynja æxli. þá er vitað um fjölda efna og efnasambanda i umhverfinu sem hrundið geta af stað krabbameinsvexti. auk eðlisfræðilegra og líffræðilegra áreita svo senr geislavirkni og veira. í stefnumörkun þeirra manna sent fást við skipulag heilbrigðis- ntála í dag, allt frá yfirstjórn lil einstakra lækna í starfi. sýnist áhersla á fyrirbyggjandi aðgerðir gegn sjúkdómum verða nreira og meira áberandi. Getum við þá nokkuð gert á því sviði varðandi krabbamein? Því er fljótsvarað játandi og kemur að nokkru fram F grein Gunnlaugs. Faraldsfræðilegar rannsóknir hérlendis síðustu 20 til 30 ár sýna Ijóslega að ein tegund þeirra krabbameina sem eru í hvað örustum vexti er lungnakrabbameinið. Það er viðurkennd staðreynd í dag að þar eru sígarettureykingar fyrst og fremst að verki. Þar er því unnt að benda á orsakaþátt í umhverfi sem valdur er að fjölda ótímabærra dauðsfalla og miklunr mannlegum þján- ingum. í bók sem út kom árið 1975 í Bandaríkjunum og fjallar um áhættuþætti og krabbamein segir einn af þarlendum forustu- mönnum í krabbameinsrannsóknum að um 40% af öllum dauðs- föllunt karla úr krabbameini í Bandaríkjunum í dag stafi af sígarettureykingum. Á hann þar við krabbamein í lungum, barka- kýli, munnholi, koki. vélinda og þvagblöðru. Svo sem kunnugt er hefur magakrabbamein verið sú tegund sem algengust hefur verið hér á landi nreð körlunr og næstalgengust með konunt, að minnsta kosti unt áratugabil. Við geturn ekki með fullri vissu sagt hver orsökin er en ætla má að einhver efni í fæðunni eða meðhöndlun fæðunnar sé þarna að verki eða ef til vill skortur á nauðsynlegum efnum í fæðunni. Vitað er um tvenns konar efnasambönd sem koma fyrir í ýmsum fæðutegundum og eru sterkir krabbameinsvaldar í dýratilraunum, en það eru nítrósamín og polycyclisk kolvatnsefni (t.d. 3:4 benspyren). Hvern þátt þessi efnasambönd kunna að eiga í hárri tíðni magakrabbameins í ýmsum löndum, svo sem íslandi, er ekki að fullu ljóst ennþá. Það er fagnaðarefni að Manneldisráð hefur vcrið vakið til lífs að nýju og mun án efa að einhverju leyti snúa sér að rannsóknum á þessu sviði. Á þann hátt er hugsanlegt að uppgötva áhættuþætti 3

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.