Heilbrigðismál - 01.09.1977, Page 6

Heilbrigðismál - 01.09.1977, Page 6
Else Lunde flutti erlndi í Norræna húsinu í sumar um vandamál þeirra kvenna sem fengið hafa krabbamein í brjóst. Erindið vakti mikla athygli þeirra sem á hlýddu, en útdráttur úr því er birtur hér. Mynd: Gunnar V. Andréason. hafi alltaf verið um krabbamein að ræða. Það hefur tekið að sér það verkefni að hjálpa sjúklingum sem eiga að fara í uppskurð, gefa þeim ráð og andlegan styrk í ljósi eigin reynslu. Bæði félögin eru tengd Krabba- meinsfélaginu (Landsforeningen mot Kreft), og nú höfum við sem skornar höfum verið upp við brjóstakrabba bæst við Forráðamönnum Krabbameins- félagsins hafði lengi verið ljóst að sá hópur kvenna sem við erum fulltrúar fyrir þarfnast einnig sið- ferðilegs stuðnings og hagnýtrar hjálpar. Mörgum konum sem gengist hafa undir skurðaðgerð gegn brjóstakrabba hafði einnig komið eitthvað svipað í hug. Eldsál nokkur, formaður sam- taka þeirra sem barkakýlið hefur verið numið úr, og Krabbameins- félagið sáu svo um að fimm fyrr- verandi brjóstakrabbameinssjúkl- ingum, ásamt yfirsjúkraþjálf- aranum á Radiumsjúkrahúsinu sem hefur rnikla reynslu af að starfa með brjóstakrabbasjúkl- ingum, var boðið á umræðufund hjá fyrrnefndum samtökum í september 1976. Fundurinn var haldinn í Geilo í Noregi. Við urðum bæði hrifnar og djúpt snortnar af því sem þetta fólk gerir úr fötlun sinni: Það notar hana til að hjálpa öðrum. Þetta á einnig að vera markmið okkar. Við teljum að konursem skornar eru upp við brjóstakrabba þarfnist hjálpar. Svipuð starfsemi er hafin I fleiri löndum, en starfshættir annarra hæfa okkur ekki óbreyttir. Við urðum sammála um að þreifa okkur áfram og læra af reynslunni. í lok septembermánaðar 1976 var fyrsti fundurinn haldinn. Þá var ákveðið að byrja að heimsækja konur sem dvöldu á Radium- sjúkrahúsinu, og starfsemi okkar hófst í október. Við höfðurn nú þegar farið í yfir 300 heimsóknir. Bæði sjúklingar, læknar og hjúkr- unarfólk hafa tekið starfi okkar vel. Við heimsækjum sjúklingana tvisvar í viku. Við sömdunt leiðbeiningar handa nýjum sjálf- boðaliðum og einnig bréf sem sjúklingarnir fá fyrir fyrstu heim- sókn. Viðbrögð almennings eru óeölileg Því miður eru sorglegar sjúk- dómssögur um fólk með krabba- rnein vinsælt umræðuefni. Alltof sjaldan er rætt um alla þá mörg þúsund krabbameinssjúkl- inga sem hlotið hafa bata. Okkur finnst mikilvægt að þessi hópur komi fram á sjónarsviðið. Þá mun án efa draga úr hræðslunni við orðið krabbi. Alltof margar konur láta vegna hræðslu hjá líða að leita strax læknis þegar þær finna hnút t brjósti. Aukin hreinskilni um þessi mál meðal almennings yrði til þess að krabbamein í brjósti finndist fyrr hjá mörgum konum og bata- horfur þeirra ykjust. Oftast fá konur brjóstakrabba a aldri sem þeim er einnig erfiður af öðrum ástæðum. Konan er að komast úr barneign, börnin eru að fara að heiman, henni finnst lítil þörf fyrir sig, nýjabrumið er farið af kynlífinu og fleira kemur til. Ég hef heyrt margar ljótar sögur um hvað brjóstakrabbasjúklingar 6 FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.