Heilbrigðismál - 01.09.1977, Side 13

Heilbrigðismál - 01.09.1977, Side 13
UÝMÆLI AF VETTVANGI KRABBAMEIIIS- B, A TJTJSÓKW A Oft er spurt: Hva<) líður ráðgátunni um orsakir krabbameins? Erum við nokkru nœr pví en áður að leysa gátuna um orsakir og eðli krabbameins? Þessu er til að svara að lausnin er enn þá fjarlœg en margvísleg vitneskja hefur fengist sem gerir það að verkum að meiri bjartsýni er að vœnta um lausn gátunnar en allur þorri manna gerir sér grein fyrir. Hérsegir Gunnlaugur Geirsson frá stöðunni i þessum málum í dag en hann er yfirlœknir á frumurannsóknastofu Krabbameinsfélags Islands. Krabbameinsrannsóknir fara fram víðs vegar í heiminum, einnig hérlendis, og þeir sem þar um fjalla vmna á mismunandi sviðum að sama marki. Frá fyrri tímum þekkjast lýsingar á æxlum eða átu- ■neinum en við tilkomu smásjár- rannsókna gerðu menn sér fyrst ljóst að sjúkdómurinn er fólginn í offjölgun afbrigðilegra fruma sem hreiðast út í líkamanum og þrýsta að eða hindra á annan hátt eðlilega sfarfsemi líffæra. Enda þótt æxli eigi það sammerkt að vera mynduð af óeðlilegri frumufjölgun eru þau mJög mismunandi að því er varðar frumugerð, vaxtarhraða og fleira, aieðal annars eftir því frá hvaða iíffæri æxlið er sprottið. I fyrstu beindust krabbameins- rannsóknir að útliti illkynja æxla og frumugerð, auk þess sem fram fór skráning á tíðni þeirra og á atriðum er varða krabbameinssjúklingana sjalfa. Er þessi þekkingarforði jókst ^01T1 frarn ýmiss konar vitneskja serr> gat gefið bendingu um orsakir eða áhættuþætti krabbameins. Elsta dæmi um slíkt er frá árinu ^5, er breski læknirinn Sir Percival Pott benti á tíðni húð- krabbameins á kynfærum sótara og taldi það stafa af óhreinindum er fylgdu starfi þeirra. Þetta er einnig markvert sökum þess að þarna var í fyrsta sinn bent á að krabbamein geti myndast af utanaðkomandi orsökum, en sé ekki sprottið upp sjálfkrafa. Árið 1916 var kenning hans vísindalega staðfest er þrem japönskum læknum tókst að fram- kalla húðæxli hjá tilraunadýrum með því að bera á þau koltjöru, og um það bil fimmtán árum síðar einangraði Kennaway efnið „benspyren" úr koltjörunni, en það er ntjög virkur krabbameinsvaki og að öllum líkindum orsakavaldur ofangreindra æxla. Helstu rannsóknar- aöferðir í grein sem þessari er ekki unnt að gera skil hinum fjölþættu krabbameinsrannsóknum sem frarn fara í heiminum í dag. Með Álitið var að sviðinn og reyktur matur væri valdur að krabbameini í maga. Krabbameinsfélag íslands lét fyrir rúmum áratug gera nákvæma könn- un á magni krabbameinsvaldandi efna í þessum matvælum. Þá kom í Ijós að sé kjöt aðeins reykt í um tvo sólarhringa og ef svið eru sviðin við loga frá propangasi eða acetylen- gasi er lítil eða engin hætta á mynd- un hinna skaðlegu efna. Mynd: Gunnar V. Andrésson. SEPTEMBER 1977 13

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.