Heilbrigðismál - 01.09.1977, Page 14

Heilbrigðismál - 01.09.1977, Page 14
Þekktasti krabbameinsvaldurinn í umhverfi manna er tóbaksreykur. Mynd: J. Long. því að minnast stuttlega á helstu þætti slíkra rannsókna má þó fá betri hugmynd um hve fjölbreyti- legar þær eru. 1. Faraldsfræði krabbameins. Nákvæm skráning á æxlum er undirstaða þekkingar á illkynja meinsemdum. Forsenda slíkrar skráningar eru traustar heimildir, sem fást við vefjagreiningu meina- fræðinga, annað hvort með smá- sjárskoðun vefjasýnis úr æxli, sem numið hefur verið á brott með skurðaðgerð eða við krufningu. Uppskera krabbameinsskráning- arinnar kemur fram með því að auka þekkingu á tíðni og hegðun hinna ýmsu æxla eins og sagt var frá í næst síðasta tölublaði Frétta- bréfs um heilbrigðismál. 2. Lækningarannsóknir og krabbamcinsleit. Læknar sem annast krabbameinssjúka fylgjast með og rannsaka gang sjúkdóms- ins, svörun við meðferð og aðra þætti er varða einstaka sjúklinga. Krabbameinsleit er einn liður í slíkum rannsóknum. Stofnað er til reglubundins heilbrigðiseftirlits með sérstöku tilliti til krabbameins i ákveðnum líffærum. Um er að ræða annars vegar almenna hóp- rannsókn, svo sem gert hefur verið varðandi leghálskrabbamein, eða rannsóknir á hópum manna sem taldir eru vera í meiri hættu en aðrir að fá krabbamein, t.d. starfs- menn í efnaverksmiðjum. Til- gangur hópskoðana er tvíþættur, fyrst og fremst að uppgötva mein og lækna það áður en það breiðist út, en einnig að safna vitneskju um byrjunarstig illkynja æxlisvaxtar. 3. Meinavefjafræði. Athuganir á útliti æxla, einkum smásjárskoðun og nú á síðustu árum einnig athug- anir á örgerð æxlisfruma með raf- eindasmásjá eru meðal undir- stöðuatriða allra krabbameins- rannsókna. Meinfræðingar víða um heim hafa fyrir tilstilli Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) komið sér upp kerfi til flokkunar æxla samkvæmt því hvernig þau líta út í smásjá og taka allar aðrar rannsóknir mið af því. 4. Dýratilraunir. Augljóst er að ekki er hægt að gera tilraunir með krabbamein á mönnum. Enda þótt ekki sé unnt að heimfæra niður- stöður dýratilrauna að öllu leyti yfir á menn má fullyrða að þær hafa gegnt ómetanlegu hlutverki í rannsóknum á orsökum krabba- meins. Á það við um athuganir á hlutdeild ýmissa efna í krabba- meinsmyndun svo og um veiru- rannsóknir og kannanir á áhrifum geislunar. Þáttur geislunar og geislavirkra efna í æxlismyndun er vel kunnur af dýrkeyptum mis- tökum manna, en einnig af mark- vissum athugunum á lifandt vefjum dýra. Mjög mikið starf liggur að baki þeirri vitneskju, að þekktar eru a.m.k. 110 veiruteg- undir sem geta myndað illkynja æxli meðal ýmissa dýrategunda, en ekki hefur tekist að sanna með vissu slíkt orsakasamhengi hjá mönnum, þrátt fyrir mjög um- fangsmiklar rannsóknir. Dýratilraunir hafa skilað mikil- vægustu niðurstöðum er varðar rannsóknir á ýmsum efnum, sem reynst hafa krabbameinsvakar (chemical carcinogens). Segja má að flest ný efni og efnasambönd sem ætluð eru til neyslu eða blandast umhverfi manna verði að prófa á dýrum áður en þau eru sett á markað. Þannig hefur verið unnt að bægja frá ýmsum efnum, sem gætu hafa valdið miklum usla meðal manna með ófyrirsjá- anlegum afleiðingum, hefði dýra- tilraunum ekki verið beitt. Nefna má sem dæmi efnið „N-2-Fluor- emylacetamide" sem er virkt skor- dýraeitur en reyndist við dýratil- raunir vera öflugur krabbameins- vaki og var því ekki sett á markað. 5. Lífeðlis- og lífefnafræðilegar athuganir á krabbameini. Lífeðlis- 14 FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁU

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.