Heilbrigðismál - 01.09.1977, Qupperneq 18

Heilbrigðismál - 01.09.1977, Qupperneq 18
Hreyfing sem heilsiibót Trúlega efast enginn lengur um þá staðreynd að hæfilcg hreyfing og útivist eru meðal þýðingarmestu atriða til að koma í veg fyrir eða draga úr ýmiss konar sjúkdómum, sem eru eins konar fylgifiskar vel- ferðarþjóðfélagsins. En þrátt fyrir það eru menn ótrúlega værukærir í þessum efnum og alltof fáir haga lífsvenjum sínum eins og þyrfti að vera. Það er fyrst þegar menn reka sig á, stundum illilega, að þeir vakna til meðvitundar um hvað er á seiði. Iþróttasamband Islands hefur um árabil beitt sér fyrir því að hafa jákvæð áhrif í þessum efnum, m.a. með ýmiss konar útgáfu- og kynn- ingarstarfsemi. Læknar hafa lagt sitt að mörkum á þessu sviði, enda eru þeir vafalaust dómbærastir á hvar skórinn kreppir mest frá heilsufarslegu sjónarmiði. Meðal kynningarrita sem Í.S.Í. hefur gefið út á þessum vettvangi er bæklingurinn „Trimm og heilsu- rækt“, skrifaður af þremur þekktum og virtum læknum sem hver á sínu sviði þekkja vel til þessara mála af eigin raun. Prófessor Hjalti Þórarinsson segir m.a. svo í nefndum bæklingi: „Það er sorgleg staðreynd að sam- fara aukinni velmegun í velferðar- þjóðfélögum nútímans eykst ískyggilega mikið tíðni ýmissa lífs- hættulegra sjúkdóma. Má þar fyrst nefna hjarta- og æðasjúkdóma. Margir áhættuþættir eru þegar kunnir varðandi þessa sjúkdóma, t.d. offita, streita, hár blóðþrýst- ingur, reykingar og allt of miklar kyrrsetur. Nútima læknisfræði leggur réttilega síaukna áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir, þ.e a.s. að koma í veg fyrir sjúkdóma, ef það er kleift. En oft er talað fyrir daufum eyrum. Að áliti lækna eru þeir alltof margir sem sýna líkama sínum fullkomið hirðuleysi. Því veldur stundum sinnuleysi, leti, ímyndaður tímaskortur eða oftrú á endingu og hæfni mannlegs líkama. Staðreynd er að þeir sem þjálfa líkamann dyggilega og misbjóða honum ekki eða sjaldan með óhóf- legu hóglífi eða alltof skaðlegum lífsvenjum fá síður ýmsa af þeim lífshættulegu sjúkdómum sem fylgja aukinni velmegun, og hafa, mun betri batahorfur ef þeir fá þessa sjúkdóma. Þess vegna ættu sem allra flestir að gefa sér tóm til að huga að aukinni velferð líkam- ans með útivist og hreyfingu. Með því öðlast þeir andlega og líkam- lega vellíðan, aukið viðnám, þrek og þrótt.“ Haukur Þórðarson yfirlæknir segir í sama bæklingi m.a.: „Enginn lætur húsið sitt grotna niður eða bílinn sinn hristast í sundur. En hvað um þá fasteign og hreyfitæki sem aldrei er hægt að endurnýja, líkamann? Áróður síðustu ára fyrir aukinni líkamsrækt og líkamsstælingu byggist ekki á nýlega uppgötvuðum sannindum. Mörg staðreyndin um þessi mál virðist hinsvegar gleymd og grafin núlifandi kynslóðum, sem jafnvel fornmönnum var vel kunn. íslendingasögur segja frá áhuga fornmanna á leikjum og íþróttum, ekki aðeins barna og unglinga, heldur einnig fullorð- inna. Á sjötugs aldri gekk Skalla- grímur til knattleiks. „Iþróttir kann ég átta“, sagði Haraldur harðráði á efri árum. Fornaldarkóngur einn í Svíþjóð er hugsanlega fyrsti trimmarinn. Hann gekk langa vegu morgun hvern í öllum herklæðum Sund er sú tegund líkamsræktar sem flestir stunda. Árið 1976 voru gestir á sundstöðum í Reykjavík um 1034 þúsund, en tíu árum áður voru þeir 607 þúsund. Aukinn áhugi á hæfi- iegri hreyfingu hefur ásamt öðru leitt til lækkunar á dánartíðni af hjarta- og æðasjúkdómum í sumum nágranna- landanna. 18 FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.