Heilbrigðismál - 01.09.1977, Side 19

Heilbrigðismál - 01.09.1977, Side 19
til að viðhalda líkamskröftum sínum. Síðar á öldum gleymdust þessar listir að mestu vegna efna- hagslegra erfiðleika. Lífsbjörgin frá degi til dags krafðist líkamlegs erfiðis. Matvana fólk, úrvinda af þreytu eftir strit fyrir daglegu brauði, stundar ekki leiki og íþróttir. Síðan óx gengi þjóðarinnar á ný og nauðsyn líkamlegs erfiðis við öflun fæðu og nauðþurfta minnkaði. Stór hluti þjóðarinnar fór þá að búa við líkamlegt makræði. Orkulindirnar knýja nú vélar sem koma í stað strits líkam- ans og skila margföldum afköstum. Sú þróun er hárrétt, en felur í sér veigamikla hættu fyrir höfund sinn, 'tianninn: Gleymst hefur þörf líkama hans fyrir hreyfingu og stælingu. Börn eru sífellt á hreyfingu og telja ekki eftir sér sporin. Flestir unglingar reyna hressilega á iíkamskrafta sína af og til eins og af ■nnri þörf. En þegar komið er fram að tvítugs aldri, hverfur megin þorri manna og kvenna úr leik. I langflestum tilvikum er tening- unum kastað ú milli 25 og 30 ára aldurs, hversu verður um viðhald °g viðurgerning við líkamann til æviloka. Trúlega kemur þú áþreifanlega í ljós önnur tilhneig- ing mannverunnar, sem efalaust er líka frumstæð og áhrifarík: Til- hneigingin til hóglífis og makinda, náskyld öðrum djúpstæðum mannlegum eiginleika, letinni. Menn eru í eðli sínu latir og ótrú- lega fúsir að taka áhættuna af óhollum lifsvenjum, þótt ekki sé mikils krafist: 77/ þess að viðhalda starfshœfni Uffœra og líkamans í heild, nœgir 15 lil 30 mín. líkams- stœling á dag eða 1.5 til 3 klst. á viku.“ Og loks segir Nikulás Sigfússon yfirlæknir Hjartaverndar m.a. í sinni grein í þessum sarna bækl- ingi: „Hér á landi deyja nú á fimmta hundrað manns á ári hverju úr hjartasjúkdómum. Lætur nærri að þessir sjúkdómar valdi dauða þriðja hvers íslendings. Margar rannsóknir hafa sýnt að fólki sem er í góðri líkamlegri þjúlfun er ekki eins hætt við krans- æðasjúkdómum og hinu, sem illa eða ekki er þjálfað. Mun láta nærri að óþjálfuðu fólki sé tvisvar sinnum hœttara við kransœðasjúkdómum en hinum vel þjálfuðu. Meðal einföld- ustu og vinsælustu æfinga sem fólk getur tileinkað sér í þessum efnum má nefna göngur, skokk, hlaup, hjólreiðar, sund, fjallgöngur og skíðagöngur. Líkamsþjálfun er mikilvægur þáttur í þeirri viðleitni að verjast hjarta- og æðasjúkdómum en bestur árangur fæst ef tillit er tekið til allra áhættuþátta sem hægt er að hafa áhrif á, en það er að halda likams- þyngd eðlilegri, fara gætilega í neyslu mettaðrar fitu og sykurs, hætta reykingum og fara reglulega í eftirlit hjá lækni." Þessi ummæli læknanna þriggja þurfa engra skýringa við. Þau eru einföld og skýr og byggð á læknis- fræðilegum staðreyndum. Aðal- atriðið fyrir hinn almenna borgara er að láta sér ekki nægja að lesa þau, heldur tileinka sér þau og hafa Svo virðist sem Kim Grove, höfundur hinna kunnu teikninga um ástina, telji að hreyfing sé æskileg tii heilsubótar. ást er... . að selja bílinn og kaupa hjól SEPTEMBER 1977 19

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.