Heilbrigðismál - 01.09.1977, Qupperneq 20

Heilbrigðismál - 01.09.1977, Qupperneq 20
að léiðarljósi varðandi daglegar lífsvenjur. Hér á landi hefur ekki farið fram. svo niér sé kunnugt, athugun á því hversu margir sjúklingar liggja árlega á sjúkrahúsi vegna hjarta- og æðasjúkdóma eða eru frá vinnu af þeim sökum um lengri eða skcmmri tíma. Það væri þó verðugt rannsóknarefni þegar m.a. er haft í huga að hver legudagur á sjúkra- húsi kostar um það hil 20.000 krónur. Með öðrum orðum kostar það um 7 milljónir króna að liggja eitt ár á sjúkrahúsi. Á þessu sést greinilega hversu fyrirbyggjandi aðgerðir eru þýðingarmiklar og að þeim fjármunum er vel varið sem veitt er til fyrirbyggjandi aðgerða, þar á meðal lil að hvetja fólk og skapa því aðstöðu til útivistar og hrcyfingar. Slíkir fjárniunir skila sér margfaldlega aftur með færri dvalardögum á sjúkrahúsum og minni fjarvistum frá vinnu en stuðla í þess stað að því að við eignumst heilbrigðari og ham- ingjusamari þjóðfélagsþegna. Sænskur vísindamaður. Per Olof Ástrand, réðst í það verkefni að athuga sanibandið milli hjarta- dreps og líkamsræktar í Svíþjóð. Ekki eru hér tök á að greina í ein- stökum atriðum frá þessari rann- sókn, enda var hún viðamikil og fjölþætt. Niðurstöður hennar gefa þó ótvírætt til kynna að tölfræði- lega er um gífurlegar upphæðir að ræða. annars vegar í sjúkrahús- kostnaði og hins vegar í fram- leiðslutapi vegna fjarvista frá vinnu. Vísindamaðurinn komst að þeirri niðurstöðu, að ef hægt væri að minnka hjartadrep um 30% gæti þjóðarframleiðslan aukist um 16.7 milljarða ísl. króna. en með því að minnka það um 10% gæti hún aukist um 5.6 milljarða. Ef þessar tölur væru reiknaðar út frá fólksfjölda hér á landi saman- borið við Svíþjóð, mundi þjóðar- framleiðslan hér á landi í fyrra til- vikinu aukast um 417 milljónirog í hinu siðara um 140 milljónir. Af framansögðu og mörgu fleiru. sem ekki hefur verið drepið á hér, ætti öllum að vera Ijós hin gífurlega Gönguferðir eru kjörnar fyrir fólk sem fær litla hreyfingu í sínum hversdagslegu störfum. Enda þótt ekki sé nauðsynlegt að ganga á há fjöll til að njóta slíkrar útiveru þá dregur það ekki úr ánægjunni ef landslagið er stórbrotið og heillandi eins og á Eyjafjallajökli. Mynd: Gunnar V. Andrésson. þýðing fyrirbyggjandi aðgerða við heilsugæslu. Útivist og hreyfing vega þungt í því sambandi. Sigurður Magnusson, úlbreiðslu- stjóri ISÍ, tók saman. ALLT MEÐ EIMSKIP B.MVALLA 20 FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.