Heilbrigðismál - 01.09.1977, Page 21
Leiiad svara
Er reyksýran
hættuleg?
í ýmsum apótekum fæst efni
sem nefnt er reyksýra og virðist
sums staðar á landinu notað
nokkuð niikið við „reykingu" á
laxi og silungi. Er hugsanlegt að
hættulegt sé að nota þetta efni í
matvæli vegna þess að í því sé
benspyren sem talið er að valdið
geti krabbaincini?
Leiiað var svara hjá Þorsteini
Þorsleinssyni lifefnafrceðingi:
Á alþjóðlegri ráðstefnu sem
haldin var í Póllandi í fyrra, var
Talið er að með þeim aðterðum
sem nú eru notaðar við reykingu
á matvælum hjá íslenskum fram-
leiðsluaðilum sé sneytt eins og
frekast er kostur hjá myndun
krabbameinsvaldandi efna. Á
myndinni er verið að vinna ýsu-
flök fyrir reykingu.
Mynd: Gunnar V. Andrósson.
fjallað um krabbameinsvald-
andi efni í matvælum. Þar kom
greinilega fram að rannsóknir
þær sem Niels Dungal lét gera á
árunum 1964 til 1967 hafa flýtt
verulega þeirri þróun sem orðið
hefur víða um lieim að sett hafa
verið ákvæði um hámark af
benspyren í matvælum. Meðal
annars vegna þessarar þróunar
hafa framleiðendur reyksýru
keppst við að losna við sem
mest af þessu hættulega efni úr
vöru sinni án þess að bragð
matvælanna sem sýran er noluð
á breytist. Af þessum ástæðum
tel ég ntjög litlar líkur á að hér á
landi sé til sölu reyksýra sem er
varasöm að þessu leyti.
Töflur við sjóveiki
f niarshcfti Fréttabréfs 11111
heilbrigðisniál var þess getið að
á meðan Niels Dungal ritstýrði
blaðinu hafi m.a. verið sagt
frá nýju sjóveikismeðali
(Dramamin). Spurt er hvort
þetta meðal hafi gefist ver en
Anautin töflurnar sem nú
virðast mest scldar.
Leitað var svara hjá Ttyggva
Ásmundssyni lœkni:
Lyfjaverksmiðjan Searle í
Bandaríkjunum framleiðir lyfið
dimenhydrinate undir nafninu
Dramamin. Lyf þetta er ekki að
finna í sérlyfjaskrá frá 1.
desember 1976 og því ekki til
sölu hér á landi.
Sala á eftirtöldum sjóveiki-
lyfjum er leyfð hér á landi án
lyfseðils (mest 10 töflur eða
stílar handa einstaklingi):
Anautin, töflur og stílar.
Cinnarizin, töflur.
Diphenhydramin (Benadryl R),
töflur.
Coffinautin, töflur.
Meclozin (Postafen R), töflur
og stílar.
Öll þessi lyf hafa svipaða
verkan og dimenhydrinate
(Dramamin R) og einnig svip-
aða ókosti, sem eru aðallega
þurrkur í rnunni, syfja og höfgi
hjá sumum sem taka þessi lyf.
Getur því verið varasamt fyrir
stjórnendur samgöngutækja og
aðra sem vinna störf sem
krefjast árvekni að vera undir
áhrifum þessara lyfja. Erfitt er
að benda á eitt ákveðið lyf sem
kjörlyf við sjóveiki. Áhrifin eru
vafalaust nokkuð einstaklings-
bundin og það sem einurn finnst
eiga best við sig getur verkað
miður vel á annan. Þó eru ýmsir
sem mæla með lyfinu Meclozin.
einkum til lengri sjóferða. Það
hefur mun lengri verkun en hin
lyfin og er síður talið valda
syfju. □
SEPTEMBER 1977
21