Heilbrigðismál - 01.09.1977, Side 28
1...
Nú bjóóura við enn eina isnýjung,
is meó rjóma og sultu.
í Hjá okkur getió þió valið úr fjöl-
rbxeyttasta úrvali ÍKejarins af is.
GARÐS
APÓTEK
Sogavegi 108
Reykjavík
að komið verði í veg fyrir vanheilsu
á fullorðinsárum.
Gerö þvagfæranna
Það er ekki úr vegi að rifja upp
helstu atriði varðandi útlit eða gerð
þvagfæranna og starfsemi þeirra.
Nýrun eru tvö (sjá mynd), um það
bil 10 cm að lengd, eins og stórar
baunir í laginu og liggur sitt hvoru
megin hryggjar, og er efri endi
þeirra í hæð við neðstu rif. Ofan á
nýrunum liggja nýrnahetturnar,
kirtlar sem framleiða ýmis hormón,
en hafa ekki beinlínis neitt með
starfsemi nýrnanna að gera. Nýrað
er myndað af nýrnaberki (1), en þar
fyrir innan nýrnamerg (2) sem
liggur að nýrnaskjóðunni og er að
nokkru umlukinn af henni. Aðal-
starf nýrnanna er að losa líkamann
við ýmiss konar úrgangsefni sem
myndast við bruna eða niðurbrot
næringarefna, svo og að stjóma
salt- og vatnsbúskap líkamans. Við
nýrnabilun truflast útskilnaður
þessara úrgangsefna sem safnast þá
fyrir í blóðinu og leiðir það til
þvageitrunar sem er lífshættulegt
ástand. Líta má á nýrun sem nokk-
urs konar síur þar sem þvagið skilst
frá blóðinu er í gegnum þau renn-
ur. Síðan streymir þvagið eftir
flóknu gangakerfi í nýrnavefnum
og niður í nýrnaskjóðuna. Þaðan
dreitlar svo þvagið jafnóðum niður
eftir þvagleiðurum (4), sem opnast
í blöðruna. Þvagblaðran (5) tekur
misjafnlega mikið og fer rúmmál
hennar að sjálfsögðu eftir aldri
barnsins. Þegar hún er full ertast
taugar í blöðruveggnum og barn-
inu verður mál að pissa. Tæming
blöðrunnar er ósjálfráð hjá yngstu
börnunum, en að jafnaði fara þau
um þriggja ára aldur að geta haldið
sér þurrum. Or botni blöðrunnar
gengur svo þvagrásin (6), sem hjá
drengjum er 4 —5 sinnum lengri en
hjá stúlkum. Undir eðlilegum
kringumstæðum getur þvagið ekki
gengið úr blöðru upp í nýrnaskjóð-
urnar, nokkurs konar lokur í
blöðruveggnum koma í veg fyrir
Uppdráttur af þvagfærum. Skurð-
flötur af hægra nýra (A) sýnir innri
byggingu í stórum dráttum. Sjá enn
fremur skýringar í greininni.
það. Þessi lokuverkun getur bilað,
einkum við endurteknar og lang-
varandi þvagsýkingar og kemst þá
blöðruþvagið óhindrað upp eftir
þvagleiðurunum. Gerist það sér-
staklega þegar þrýstingur í blöðr-
unni vex, t. d. við þvaglát.
Helstu einkenni
Þar sem svo oft ríkir um það ó-
vissa, einkum þegar böm eiga hlut
að máli, hvað þvagsýking hefur
staðið lengi eða hversu margar
sýkingar hafi áður átt sér stað, er
erfitt að áætla um sjúklegt ástand
innri þvagfæra. Er því varlegast að
gera ráð fyrir að þvagsýking stað-
fest með ræktunum hafi þá þegar
náð upp í nýrun og geti náð þangað
hvenær sem er. Með þennan
möguleika í huga og alvarlegar af-
leiðingar hans er hyggilegast að
hætta að tala um blöðrubólgu, sem
í augum fólks hefur hingað til verið
talin meinlaus kvilli er ekki þyrfti
að hafa neinar áhyggjur af og
þarfnaðist tæpast nokkurrar með-
ferðar. Það er ekki óvenjulegt að
heyra eldri konur nefna í lok
28
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL