Heilbrigðismál - 01.09.1977, Qupperneq 30

Heilbrigðismál - 01.09.1977, Qupperneq 30
senda sýnið áfram til Rannsókna- stofu Háskólans við Barónsstíg. Taka þvagsýna Þegar þvagsýni er tekið verður að gera það á mjög samviskusamlegan hátt. Óhreinindi vilja safnast á ytri kynfæri og í kringum þvagrásarop, og geta þau blandast þvaginu og truflað rannsóknina. Það verður því að hreinsa vel eða þvo þarna í kring. Á sjúkrahúsum er notað gerilsneytt vatn, blandað sótt- hreinsandi efni, en í heimahúsum má vel notast við ylvolgt, soðið vatn og sápu. í lok þvottar skal ætíð skola yfir svæðið með hreinu vatni, svo hinn sótthreinsandi lögur eða sápa blandist ekki þvagsýninu. Hjá stúlkum er þvotturinn fram- kvæmdur þannig, að burðar- barmarnir eru glenntir í sundur og síðan þvegið svæðið á milli þeirra. Þægilegast er að nota til þess bómullarhnoðra, sem vættir eru í hreinsivökvanum og er farin ein yfirferð með hverjum hnoðra, strokið framan frá og aftur eftir. Nóg er að gera þetta 5—6 sinnum, síðan skolað yfir með hreinu vatni, eins og áður er sagt. Hjá drengjum verður að fletta forhúðinni upp og þvo rækilega í kringum þvagrásar- opið, en gæta þess, að forhúðin skreppi ekki fram fyrr en eftir að þvagsýnitöku er lokið. Hjá yngri drengjum er forhúðin oft þröng og ekki hægt að ná henni það langt upp á reðurhúfuna, að sjáist í þvagrásaropið. Svæðið er þá hreinsað og þvegið eins og kostur er og síðan beðið átekta eftir niður- stöðu fyrstu þvagskoðunar. Ef hún er eitthvað vafasöm má reyna að hreinsa betur forhúðina að innan- verðu með því að sprauta skol- vökva upp í gegnum forhúðaropið. Hjá eldri börnum er tekið svokall- að miðbunuþvag, sem er í því fólgið, að fyrsta hluta þvagbun- unnar er kastað, en síðan tekið sýni til rannsóknar. Hjá yngstu börnun- um er varla gerlegt að ná mið- bunuþvagi, því til þess þarf skilning og samvinnu af hendi barnsins. Þó er furða hvað mæður eru oft lagnar við að ná mjög svo viðunandi þvagsýni með því að vakta vel barnið, þegar það helst losar sig við þvag, t. d. eftir svefn eða meðan á máltíð stendur. Annars verður hjá ungbörnunum að nota plastpoka, sem límdir eru á kynfæri eftir að búið er að þvo þau og hreinsa rækilega og síðan er beðið eftir, að þvagið safnist fyrir í pokann. Slík sýnitaka verður ekki eins áreiðan- leg eins og með miðbunu að- ferðinni. Jafnmikilvægt og það er að vanda vel allan undirbúning að þvagtökunni ef hitt ekki síður áríðandi, að ílátið sé algjörlega hreint, dauðhreinsað og sömuleiðis að sá sem tekur þvagið framkvæmi það á sem hreinlegastan hátt, þvoi sér um hendur áður en athöfnin hefst og snerti ekki við innra borði loks eða íláts, sem þvagið er látið í. Þvagsýni skal helst taka að morgni og það þarf að komast sem fyrst í hendur þess sem á að rannsaka það. Að vísu má geyma þvagsýni í einn sólarhring eða svo, ef það er látið strax í kæli (ca. 4° C.). í stofuhita má þvagið ekki standa nema sem allra styst í mesta lagi eina klukkustund. Þúsundir af bakteríum Vafalaust hefur fólk heyrt ein- hverjar tölur nefndar í sambandi við bakteriu ræktanir. Bakteríurnar eru taldar eftir sérstökum aðferðum. Talning upp á 100 þús- und eða meira af sömu bakteríunni er talið öruggt merki um þvag- sýkingu. Sé gefin upp talan 10 þús- und eða minna er sennilega engin sýking til staðar. Tölur, sem þarna liggja á milli, getur verið álitamál hversu taka eigi alvarlega. Því þarf stundum að gera margar ræktanir í röð hjá sama sjúklingi til þess að átta sig á, hvort um raun- verulega þvagsýkingu sé að ræða, en í slíkum vafatilfellum er jafn- framt tekið mið af því hvort gröftur finnst í þvaginu eða ekki. Lyfjameðferð Þegar búið er að staðfesta sýk- ingu er nauðsynlegt að gefa lyf til að uppræta hana. Læknirinn ákvarðar hvaða lyfjategund skuli nota og er þá venjulega farið eftir næmis- prófi, ef það liggur fyrir. Lyfin verður að gefa nógu lengi eða 10 — 14 daga og með reglulegu millibili yfirsólarhringinn, venjulega á 6 —8 klukkustunda fresti, en þó er ein- staka lyf, sem einungis þarf að gefa á 12 stunda fresti. Aðalatriðið er að halda sig við fyrirmæli læknisins. Það má ekki láta villa sér sýn og hætta meðferð, þó einkenni hjaðni eftir tveggja til þriggja daga lyfja- gjöf. Slík batamerki tákna alls ekki það sama og að sýkingin sé að fullu yfirunnin. í færri tilvikum finnst skýring á því, hvers vegna sum börn fá þvagsýkingu, stundum aftur og aftur, en önnur sleppa. Svipað er raunar að segja um sýkingar í önd- unarfærum, við vitum að sum börn eru síkvefuð og önnur fá aldrei hor í nös. I vissum tilvikum má rekja þvagsýkingu hjá börnum til með- fæddra missmíða í þvagfærum. sem oft er þannig varið, að þau valda meiri eða minni rennslis- ^fréttimaæ VÍSIB 30 FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.