Heilbrigðismál - 01.09.1977, Qupperneq 31

Heilbrigðismál - 01.09.1977, Qupperneq 31
Erlendar heilbrigdisffréltflr hindrun á þvagi. Sem dæmi má nefna þrengsli í þvagleiðurum eða þvagrás. Slík missmíði finnast þó aðeins í litlum hluta þeirra barna, sem fá þvagsýkingar. Oft má laga missmíðin að einhverju eða öllu leyti, með aðgerðum og ríður því á miklu, að þau séu uppgötvuð tímanlega, áður en alvarlegar skemmdir hljótast af. Eins og áður er minnst á eru þvagsýkingar hjá börnum, sem komin eru á legg, mun fáséðari hjá drengjum en stúlkum. Þykir því ástæða til að fara fyrr út í ítarlegar þvagfæra- rannsóknir hjá drengjum með þvagfærasýkingu en stúlkum, því líklegt er, að meðfædd missmíði liggi þar á bak við. Hreinlæti mikilvægt Barni sem einu sinni hefur fengið þvagsýkingu er hætt við sýkingu öðru sinni. Oft þurfa þessir sjúklingar á langvarandi meðferð °g eftirliti að halda. Sé reglulegu eftirliti framfylgt af öllum aðilum eru góðar horfur á lækningu. Ástæða er til að brýna fyrir börnum, sem fengið hafa þvag- sýkingu, að fara vel með sig. Ekki er þó vert að hefta um of athafna- frelsi þeirra. Þau verða að temja sér hreinlæti, fara oft í bað (sturtu) og þvo sér þá rækilega að neðanverðu, skipta reglulega um naerföt og venja sig á, að þurrka sér eftir hægðir framan frá og aftur eftir. Þau verða að forðast vosbúð °g kulda. Þau skulu nota hlýjan fatnað i kuldatíð, einkum að neðanverðu, þurrka sér rækilega eftir bað og rjúka t. d. ekki blaut og •Ha búin út í kulda að vetrarlagi, eftir leikfimi og sund. Það eru nokkuð skiptar skoðanir um hvort leyfa eigi stúlkum, sem hætt er við þvagsýkingum að vera í sundi. Taka verður ákvörðun um slíkt 1 hverju einstöku tilfelli, en sé framangreindum varúðarráð- stöfunum um búnað sinnt og alls þrifnaðar gætt á sundstað er varla ástæða til að banna þeim það. □ Pillan hættuleg þeim sem reykja Fyrir tveimur árum var í fyrsta sinn talið að sýnt hefði verið frarn á ótvírætt samhengi á milli notkunar getnaðarvarnarpillunnar og aukn- ingar á kransæðastíflu (myocardial infarctions). Með nákvæmari athugunum á þeim bresku rannsóknum sem þá voru lagðar til grundvallar hefur komið í ljós að pillan hefur verið höfð fyrir rangri sök að verulegu leyti. Eftir allt saman er hún ekki svo ýkja hættuleg nema ef konan sem notar hana reykir einnig. Þessi fylgni er mest áberandi meðal kvenna á aldrinum 40 til 44 ára. Dánartíðni af völdum áður- nefndra hjartasjúkdóma meðal þeirra sem hvorki reykja né taka pilluna er 7 af hverjum 100.000 á ári. Þær konur sem taka pilluna en reykja ekki hafa tíðnina 10 af 100.000 og meðal þeirra sem reykja en taka ekki pilluna er hún 16 af 100.000. Að þessu leyti eru reyk- ingar einar sér hættulegri en pillu- notkunin. Ferdinand veit sennilega að nægur svefn ætti að vera fastur þáttur í daglegum lífsvenjum fólks. En þegar konur í þessum aldurs- flokki bæði reykja og taka pilluna þá hækkar dánartíðnin gífurlega eða í 58 af 100.000 og hjá þeim sem reykja mikið (15 sígarettur eða fleiri á dag) hækkar þessi tala í 83 af 100.000 á ári. í yngri aldurshópum, t.d. 30 til 39 ára, vartíðnin nokkru lægri. í þeim hópi juku reykingar dánarlíkur þeirra sem notuðu pilluna fimmtánfalt, en í eldri hópnurn voru líkurnar sextán sinnum meiri. MEDICAL WORLD NEWS, 18. APRlL 1977. TOHAKKEN OO VI. 2/1977. Heilræði fyrir þá sem vilja lengja líf sitt Samkvæmt rannsóknum Bres- lows og Belloc eru líkurnar á lengra lífi og góðri heilsu að miklu leyti háðar því að fylgt sé eftirfarandi sjö reglum: 1. Þrjár máltíðir á dag á reglu- legum tímum og ekkert snarl þess á milli. 2. Morgunverður daglega. 3. Hæfileg líkamsþjálfun tvisvar til þrisvar í viku. 4. Nægur svefn (sjö eða átta tímar hverja nótt). 5. Engar reykingar. 6. Réttur líkamsþungi. 7. Ekkert áfengi eða í miklu hófi. Maður sem er 45 ára og fer eftir þessum lífsreglum getur vænst þess að lifa ellefu árum lengur en sá sem sinnir þessu ekki (til 78 ára aldurs í stað 67 ára). Ekki getur það spillt fyrir að máltíðirnar séu hafðar fjölbreyttar og fremur sé neytt grófra brauða en brauða úr fín- möluðu korni. USIS: IPS BYLINER 4/77,49. SEPTEMBER 1977 31

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.