Heilbrigðismál - 01.09.1977, Page 34
meir að viðbrögðum manns-
líkamans við krabbanum og
það hefur komið í ljós að
stundum eru þau lík og þegar
hann smitast af sýklum eða sett
eru í hann framandi líffæri.
Til eru dæmi þess að
líkaminn hafi af sjálfsdáðum
ráðið niðurlögum krabbans.
Janúar — mars 1971.
Þekkir þú ekki
þessi einkenni?
Einkenni járnskorts, með eða
án blóðleysis, eru æði marg-
breytileg og valda sjúklingnum
mismunandi miklum óþæg-
indum.
Algengasta kvörtunin er sí-
felld þreyta, dugleysi, úthalds-
leysi til vinnu, syfja. Þetta gerist
svo hægt að fæstir gera sér grein
fyrir byrjuninni. Þreytan vex
síðan og smá viðvik geta vaxið
sjúklingunum svo í augum að
þeir koma sér helst ekki að
verki. Oft rekur þetta fólk sig
áfram meira af vilja en mætti.
Höfuðverkur er ekki óalgeng
umkvörtun, einnig ýmsar
truflanir á húðskyni, dofatil-
finning eða náladoði. Mjög
áberandi og óþægileg einkenni
er mikil kulvísi á höndum og
fótum. Neglur verða óvenju
þunnar og linar og rifna oft af
litlu tilefni.
Sumir fá særindi í tungu eða
munnslímhúð, þurrk í hálsinn
og erfiðlega gengur að kyngja.
Sprungur og afrifur í munn-
vikinu er algeng kvörtun. Enn
aðrir fá einkenni frá meltingar-
færum, svo sem lystarleysi,
vindgang, ropa, tregar hægðir
eða niðurgang, ógleði og upp-
köst.
Flest þessi einkenni járn-
skorts stafa að öllum líkindum
af truflun á starfsemi hvata
(enzyrna) en sé blóðleysi fyrir
hendi fylgja því hin venjulegu
einkenni svo sem hjartsláttur,
máttleysi og mæði.
(Úr grein eftir Sigmund
Magnússon, lækni.)
Okt.—des. 1966.
Blýeitranir í börnum
Á fimm ára tímabilinu frá
1958 til 1962ertaliðað310börn
undir 15 ára aldri hafi verið
lögð inn á spítala í Bretlandi
vegna blýeitrunar. Dauðsföll af
völdum blýeitrunar á þessu
tímabili voru 9.
Af þremur tilfellum sem voru
tilkynnt nefnd þeirri sem rann-
sakar voveifleg dauðsföll og slys
í heimahúsum var eitt banvænt,
en orsök eitrunar ekki tilgreind,
en hin tvö stöfuðu af miklu
blýmagni í málningu á rúmum
barnanna.
Innflytjendur hafa fengið
fyrirmæli um að gæta þess að
plastleikföng sem flutt væru inn
í landið væru sem allra minnst
blýblönduð og magnið mætti
aldrei fara fram úr 0,025%. í
plastleikföngum sem flutt voru
inn frá Hong Kong hafði mælst
tífalt þetta magn.
f ljós kom að 10,6% af blýi
voru í málningu á leikfanga-
kubbum til að raða saman og
byggja úr, en nú hafa verið
gefin út ströng fyrirmæli um að
blýmagn í málningu á barna-
leikföngum megi aldrei fara
fram úr 1,1%.
Blýeitrun er sennilega mjög
fátíð hjá börnum hér á landi og
ekki hefur tekist að fá neinar
upplýsingar um slík tilfelli fram
að þessu. Svo virðist sem ekki
ætti að vera mikil hætta á eitrun
frá máluðum hlutum eða plast-
vörum sem eru framleidd hér.
JÚH — sepl. 1965.
Forsíður Fréttabréfs um hell-
brigðlsmál frá 1965, 1970 og
1975. Öll ellefu ritstjóraár Bjarna
Bjarnasonar kom blaðið út
reglulega fjórum sinnum á ári.
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL