Heilbrigðismál - 01.03.1999, Qupperneq 13
Um hvað er kosið?
Stefna stjómmálaflokkanna í heilbngðismálum
Fá mál hafa verið meira til um-
ræðu undanfarin ár en heilbrigðis-
málin. Deilt hefur verið um nið-
urskurð, forgangsröðun, lokun
deilda, biðlista, kostnað sjúklinga,
sameiningu sjúkrahúsa og lækna-
skort á landsbyggðinni, svo að
nokkur dæmi séu nefnd - að ekki
sé nú minnst á gagnagrunninn. Það
hefði því mátt ætla að þessi mála-
flokkur yrði áberandi í kosninga-
baráttunni fyrir Alþingiskosning-
arnar 8. maí. En svo var ekki, frem-
ur en áður.
Á næstu síðum eru birtir hlutar
úr stefnuskrám fimm stjómmála-
flokka af sex sem bjóða fram í öll-
um átta kjördæmunum. Til að auð-
velda samanburð er efnið flokkað
eftir helstu málefnum. Nauðsynlegt
var að víkja til orðum á stöku stað
til að fella að því knappa formi sem
hér er notað, en þess gætt að merk-
ing raskaðist ekki.
Sjötti stjórnmálaflokkurinn,
Húmanistaflokkurinn, hefur stutta
en skýra stefnu í heibrigðismálum:
„í stefnu Húmanistaflokksins er
góð heilbrigðisþjónusta eitt af
helstu forgangsmálum ríkisvalds-
ins. Heilbrigðisþjónustan á að vera
öllum að kostnaðarlausu og að-
gengileg fyrir alla, hvar sem er á
landinu. Tannlækningar eru hluti af
heilbrigðisþjónustunni og eiga því
að vera ókeypis eins og annað. Gert
verði átak til þess að afnema bið-
lista í heilbrigðiskerfinu. Komu-
gjöld verði afnumin þar sem þau
samrýmast ekki kröfu Húmanista-
flokksins um ókeypis heilbrigðis-
þjónustu. Nýsett lög um miðlægan
gagnagrunn samrýmast ekki
grundvallar mannréttindum sem
snerta persónuvernd. Ekki má nota
slíkar upplýsingar um einstaklinga
nema með skriflegu leyfi viðkom-
andi eftir að hann hefur verið vel
upplýstur um hvað það felur í sér
og til hvers upplýsingarnar verði
notaðar."
Eftirfarandi gögn eru einkum
lögð til grundvallar þeirri saman-
tekt sem hér fer á eftir:
B: Ályktun flokksþings Framsókn-
armanna 20.-22. nóvember 1998.
D: Ályktun landsfundar Sjálfstæð-
isflokksins 11.-14. mars 1999.
F: Upplýsingar frá skrifstofu Frjáls-
lynda flokksins í mars 1999.
H: Upplýsingar frá skrifstofu Húm-
anistaflokksins í mars 1999.
S: Verkefnaskrá og stefnuyfirlýsing
Samfylkingarinnar, kynntar á Net-
inu i apríl 1999.
U: Stefnuskrá Vinstrihreyfingarinn-
ar - græns framboðs kynnt á Net-
inu í apríl 1999.
Erfitt er að átta sig á því hvað
skilur stjórnmálaflokkana helst að í
þessum málaflokki. Flestir eða allir
vilja tryggja góða þjónustu og jafn-
an aðgang þegnanna. Framsóknar-
flokkurinn vill markaðssetja ís-
lenska heilbrigðisþjónustu erlendis.
Sjálfstæðisflokkurinn vill breytt
rekstrarform til að auk samkeppni.
Frjálslyndi flokkurinn telur löngu
tímabært að neikvæðri vörn verði
snúið í jákvæða sókn á öllum svið-
um íslenskra heilbrigðismála.
Húmanistaflokkurinn vill að heil-
brigðsþjónustan verði öllum að
kostnaðarlaúsu. Samfylkingin ætlar
að tryggja nægt fjármagn til heil-
brigðisþjónustunnar. Vinstrihreyf-
ingin - grænt framboð vill efla og
styrkja heilbrigðiskerfið.
Fróðlegt verður að sjá hve mikið
af þeim áhersluatriðum sem hér
eru nefnd rata inn í stjómarsátt-
mála næstu ríkisstjórnar.
#•
HEILBRIGÐISMÁL 1/1999 13