Alþýðumaðurinn - 14.01.1987, Page 1
1. tölublað - 14. janúar 1987
Abyrgöarmaöur: Oskar Alfreðsson.
Afgreiösla: Strandgötu 9 - Simi 24399.
Setning og prentun: Dagsprent hf. Akureyri.
ALÞÝÐUMAÐURINN
Borgarspítalinn og landsbyggðin
Konungur Davíð af Reykjavík
virðist vera í einhverjum fjár-
hagskröggum þessa dagana, enda
nýverið búinn að halda þegnum
sínum dýrðlegan fagnað. Voru
nú góð ráð dýr. Allt í einu datt
hann niður á snjallræði. í eigu
borgarinnar hans var spítali einn
mikill og dýr sem upplagt var nú
að losna við. Ríkið hafði að
sönnu tekið verulegan þátt í að
reisa hann, og því var ekki nema
eðlilegt að það tæki við öllu heila
klabbinu. Hann hafði samband
við fjármálaráðherra, og hina
brosmildu Ragnhildi sem þótti
þetta hið mesta snjallræði af
kóngi. Verðið var ákveðið nokk-
urn veginn andvirði eins tölvu-
sneiðmyndatækis á ári. Allir voru
ánægðir. En svo hljóp babb í bát-
inn einhverra hluta vegna.
Nokkrir sómakærir íhaldsmenn
fóru að væna þau ráðherrahjúin
og kónginn um kommúnisma.
Afleiðingin varð sú að menn hót-
uðu að ganga úr flokknum og
Guð má vita hvað. Því er allt enn
í óvissu um það hvort þessi spítali
verður nokkurn tíman tvíborgað-
ur eður ei.
Einn er sá þáttur þessa kynd-
uga máls sem frekar lítið hefur
verið ræddur, en það er þáttur
hinnar svonefndu landsbyggðar.
Borgarspítalinn mun í upphafi
hafa verið byggður fyrst og
fremst sem almennt svæðis-
sjúkrahús fyrir Reykjavík og
nágrenni, en á því mun á sínum
tíma hafa verið mikil þörf fyrir.
En því til viðbótar var svo troðið
þangað inn nokkrum deildum
sem vera áttu hinar einu á land-
inu, og er þetta meðal annars
notað til að réttlæta yfirtöku
ríkisins. Hitt gleymist oft, að rík-
ið greiðir nú þegar drjúgan hluta
af rekstrinum, og ætti því auðvit-
að að hafa nokkurn íhlutunarrétt
meðal annars til að hindra
offjárfestingar.
Vel má vera að það hafi verið
réttlætanlegt að setja einhverjar
sérdeildir sem ekki er grundvöll-
ur fyrir nema á einum stað á
landinu þarna. Petta þarf þó ekki
endilega að vera sjálfgefið, og
vitaskuld er það hreinasta fásinna
að staðsetja tvær mjög sérhæfðar
deildir fyrir landið allt í Reykja-
vík. Sama gildir um ýmis sérhæfð
lækningatæki eins og til að
mynda tölvusneiðmyndatæki. Sé
þörf fyrir tvö slík tæki á landinu
ber auðvitað að setja þau niður á
tveim stöðum, þó ekki sé nema
með tilliti til almannavarnasjón-
armiða. í þessu sambandi kemur
manni auðvitað í hug hlutverk
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri sem varasjúkrahúss landsins.
Nú er hafin uppbygging fullkom-
ins endurhæfingarspítala í Krist-
nesi sem er útaf fyrir sig góðra
gjalda vert, en það verður að
segjast að þarna hefur að nokkru
leyti verið byrjað á öfugum enda.
Fyrst hefði, eða að minnsta kosti
samhliða, hefði þurft að efla
slysadeild FSA, þar á meðal með
kaupum á þessu tölvusneið-
Borgarspítalinn I Reykjavik.
myndatæki. Hér er um mikið
hagsmunamál og öryggisatriði
fyrir landsbyggðina að ræða
vegna legu Akureyrar í miðju
landsins, og hagstæðari legu
gagnvart fiskimiðunum norðan-
og austanlands heldur en Reykja-
vík. Það gæti jafnvel skipt sköp-
um ef hópslys yrði á þessum mið-
um eða inni á miðhálendinu, að
ekki þyrfti að treysta á Borgar-
spítalann einan hvort sem nú rík-
ið eða Borgin ætti hann.
í heilbrigðismálum, rétt eins
og öðrum málum verðum við að
fara að gera okkur grein fyrir því
í hvers konar landi við búum, og
við hvers konar atvinnulíf.
Draumurinn um „Heilbrigði fyrir
alla árið 2000“, er óskaplega fal-
legur, en slíkur draumur stoðar
lítt loðnusjómanninn sem bóman
sló í höfuðið, eða farþegana í
flugvélinni sem fórst yfir Trölla-
skaga og deyja hljóta af því að
slysadeildin var ásamt björgunar-
þyrlunni á allt öðru landshorni.
Stuðningsfólk
Alþýðuflokksins!
Við viljum minna á að skrifstofa Alþýðuflokksins að Strandgötu 9 er
opin alla daga á milli kl. 18 og 19 vegna atkvæðagreiðslu utan kjör-
fundar og verður svo fram að 24. janúar. Sími okkar er 24399.
Prófkjörið fer fram dagana 24. og 25. janúar á Hótel j Varðborg.
Kjörstjórn.
Prófkjör Alþýðuflokksins
Kynningarfundir verða um nk. helgi á Húsvík og Akureyri vegna
væntanlegs prófkjörs flokksins 24. og 25. janúar nk.
Frambjóðendur munu kynna stefnumál sín. Fyrirspurnum svarað.
Á Húsavík laugardaginn 17. jan. kl. 14.00 í félagsheimilinu. Á Akureyri sunnudaginn 18. jan. kl. 14.00 í Alþýðuhúsinu.
Stjórn kjördæmisráðs.