Alþýðumaðurinn - 14.01.1987, Qupperneq 6
6 - alþýöúMaðLirinn
Sigbjörn setur stefn-
una á 2. sætið
Sigbjörn Gunnarsson, Bjössi í
Sporthúsinu, er einn þeirra sem
gefa kost á sér í prófkjöri
Alþýðuflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra. Sigbjörn býður
sig fram í 2. sætið. Til að forvitn-
ast örlítið nánar um Sigbjörn og
skoðanir hans, var eftirfarandi
viðtal tekið.
- Það ráku ýmsir upp stór
augu þegar farið var að nefna
nafn þitt varðandi þátttöku í
prófkjöri krata, hvernig kom það
til?
„Ég held að fólk hafi einkum
verið undrandi þar sem það hefur
ekki verið sérlega algengt að ung-
ir menn með ósköp venjulegan
bakgrunn gæfu kost á sér í lands-
málapólitík. Á síðustu árum hef-
ur gangurinn frekar verið eftir
ákveðnum formúlum, þ.e.a.s.
menn hafi háskólanám að baki,
einkum lögfræði, fólk sé þekkt í
gegnum fjölmiðla, eftir starf að
verkalýðsmálum eða eitthvað
slíkt. Þess vegna þótti ýmsum
þetta óðs manns æði af tiltölulega
venjulegum manni. Margir muna
hins vegar að ég tók þátt í próf-
kjöri fyrir desemberkosningarnar
1979 og skipaði þá þriðja sætið á
lista Alþýðuflokksins."
- Hefur þú alltaf verið krati?
„Já, ég hlýt að hafa drukkið
kratismann í mig með móður-
mjólkinni, þar sem foreldrar
mínir hafa löngum starfað í
Alþýðuflokknum og afi minn
einnig mikið, sat meðal annars á
þingi um skeið. Og ekki nóg með
það, heldur giftist ég einnig inn í
mikla kratafjölskyldu. Þannig má
ef til vill segja að undankomu
hafi vart verið auðið, og raunar
ekki vilji til undankomu."
- Nú gefur þú aðeins kost á
þér í 2. sætið á listanum, vantar
þig metnað til að takast á við 1.
sætið?
„Ýmsir ágætir menn og konur
hvöttu mig til þátttöku í þessu
prófkjöri. Að vandlega athuguðu
máli ákvað ég að gefa kost á mér
í 2. sætið einvörðungu. Ástæð-
urnar eru fyrst og fremst þær, að
ég tel að Álþýðuflokkurinn eigi
góða möguleika á því að fá tvo
menn kjörna hér í kjördæminu í
komandi kosningum og því finnst
mér mjög verðugt verkefni að
takast á við að skipa 2. sætið og
berjast þar í kosningaslagnum og
leggja fram krafta mína til styrkt-
ar landsbyggðinni, sem svo mjög
er nú sótt að af íhaldsöflum
landsins."
- Þú hlýtur að hafa einhver
önnur áhugamál en pólitík, hver
eru þau?
„Ég hef áhuga á öllu mannlegu
skulum við segja. Þó hefur áhugi
á öllu mannlegu verið brennandi.
Ekki drakk ég þó í mig íþrótta-
áhugann með móðurmjólkinni að
ég best veit. Ég lék fótbolta um
nokkurra ára skeið, fyrst með
IBA og síðar KA. Ég spilaði
einnig handbolta með KA og sá
mér til furðu í blaði á dögunum
að ég er enn meðal tíu leikja-
hæstu handboltamanna í KA. Ég
gutla ennþá svolítið í fótbolta
með gömlum félögum og auk
þess dútla ég svolítið í golfi mér
til ánægju, en ekki með keppni
fyrir augum. Á síðari árum hef ég
tekið þátt í stjórnarstörfum í KA
og golfklúbbnum og er nú for-
maður íþróttaráðs Akureyrar."
- Eins og þú sagðir áðan þá
hefur það færst í vöxt að menn
fari ákveðnar brautir til þátttöku
í pólitík. Óttast þú ekki að leggja
á þessa braut án þess að vera
„fræðingur"?
„Að sjálfsögðu er öll menntun
af hinu góða. Ég vil hins vegar
benda á að sú hætta fylgir að
menn festist í kennisetningum
eigin fræða og verði ærið einhæf-
ir. Besta menntunin er fólgin í
skóla lífsins, með samskiptum
við sem flest fólk. Ég hef kynnst
ærið mörgum í gegnum störf
mín, fyrst sem kennari og síðar
verslunarmaður og einnig í
íþróttahreyfingunni. Ég held að
þingmaður þurfí umfram allt að
vera þremur kostum búinn. Að
vera þokkalega gefinn, að þora
og geta tekið sjálfstæðar ákvarð-
anir og ekki síst að hjartalagið sé
gott.“
- Eru einhver sérstök mál sem
þú hefur áhuga fyrir í pólitíkinni?
„Það má auðvitað telja upp
ærið margt. Það er öllum ljóst að
heilbrigt efnahagslíf er undir-
staða alls velfarnaðar í þjóðfélag-
inu.Tökum t.d. skattamál. Með
ranglátu og allt of flóknu skatta-
kerfi þrífst ekki sá jöfnuður og
velferð sem nauðsynleg er. Ég
legg áherslu á að almennar
tekjur, þ.e.a.s. tekjur sem venju-
leg fjölskylda þarf sér til fram-
færslu, eiga ekki að bera skatta.
Frádráttarfrumskóginn verður að
grisja, þannig að meginreglan
verði sú að frádráttarliðir falli
niður. Þá ber ríka nauðsyn til að
einn lífeyrissjóður verði fyrir alla
landsmenn. Um þetta eru flestir í
hjarta sér sammála, en skort hef-
ur á framkvæmdir. Mér eins og
fleirum svíður mjög hvernig
margt fólk tapaði eignum og sál-
arró þegar misgengi lánskjara-
vísitölu og launa var sem mest.
Fólk er raunar enn að bíta úr nál-
inni í því sambandi. Hví ekki að
taka hagnað Seðlabanka til þess
að leiðrétta þá eignaupptöku sem
átti sér stað?“
- Mörgum eru hugleikin hug-
tökin siðferði og pólitík, þ.e.a.s.
samtvinnun þessara hugtaka.
Hvaða skoðun hefur þú þar á?
„Undanfarinn áratug eða svo
hefur farið fram mikil umræða
innan Alþýðuflokksins um sið-
ferði í stjórnmálum. Svo er að sjá
sem allt of fáir utan Alþýðu-
flokksins hafi látið sig þessi mál
einhverju varða. Bankamálaráð-
herra var frumkvöðull að því að
skipuð var nefnd til að kanna
Hafskipsmálið á sínum tíma.
Þegar þar að kemur að nefndin
snuprar ráðherrann bregst hann
hinn versti við, enginn bar
ábyrgð. Svona geta mál ekki
gengið. Ég álít enn þann dag í
dag að afstaða Alþýðuflokksins
1979 þegar flokkurinn rauf
stjórnarsamstarfið sem frægt
er, hafi verið siðferðilega
rétt og raunar eitt af fáu verulega
heiðarlegu sem gert hefur verið í
pólitík undanfarin tuttugu ár.
Flokkurinn hlaut verulegt fylgi í
kosningunum 1978 og bundnar
voru vonir við stjórnarsetu
flokksins. Það kom síðar á dag-
inn að samstarfsflokkarnir voru
tregir til að framfylgja stjórnar-
sáttmálanum, virtust fyrst og
fremst njóta stólanna. Slíkar
ríkisstjórnir eiga ekki að sitja.
Það verður að vera liðin tíð að
loforð séu ekki efnd. Ég þykist
raunar hafa orðið var við hugar-
farsbreytingu í þá veru að flokk-
um sem ekki standa við gefin heit
verði refsað af kjósendum.“
- Eitthvað að lokum?
„Alþýðuflokkurinn virðist vera
í mikilli sókn, ef marka má skoð-
anakannanir. Flokkurinn virðist
hafa tiltrú fólksins í landinu.
Alþýðuflokkurinn er opnari öðr-
um flokkum, til dæmis á þann
veg að boðið er upp á prófkjör,
en ekki þröng klíka sem Öllu ræð-
ur um framboðsmál flokksins.
Það er von mín að sem flestir taki
þátt í prófkjörinu sem haldið
verður nú um aðra helgi.
Yerkstjóri
Óskum eftir að ráða verkstjóra
á kvöldvakt í saumadeild.
Viðkomandi þarf að hafa menntun og/eða reynslu
í saumastörfum.
Umsóknarfrestur er til 15. þ.m.
Einnig getum við bætt við starfsfólki á kvöldvakt
við saumaskap.
IDNAÐARDEILD
SAMBANDSINS
GLERÁRGÖTU 28 AKUREYRI SÍMI (96)21900
[ Wm-I
t V|B 1
i ’ÍI I
É %
\
4 1 m.
“^ÉÍÉIsö
STYTTIRKR
Sparilán Landsbankans eru
tilvalin fyrir þá sem ekki hafa
tíma til þess að bíða eftir að
sparifé þeirra vaxi á venjuleg-
1f
.«
\
.110
I4”3 ip.gn ÍW.ttS.
•v^-122
«3
1V0 ttt.
ni'
1?í' ilt
|3V ' . '13?
131 1.37 13*
.- Óí .
íia pr,
i°b
1<Jf
8f. °? ?2
an hátt. Ástæðan er auðvitað
sú að þegar spamaðartímabil-
inu lýkur veita þau sjálfkrafa
rétt á láni sem getur numið
allt að tvöfaldri sparnaðarupp-
hæðinni. Þú hefur því veru-
legar upphæbir til ráðstöfun-
ar eftir tiltölulega skamman
tfma.
Þú kemur og stofnar reikning,
ákveður hversu háa upphæð
þú vilt leggja til hliðar mánað-
arlega og hversu lengi. Að
sparnaði loknum tekur þú
höfuðstólinn út ásamt vöxtum
og færð lánið fyrirhafnar-
laust. Lánið endurgreiðist
með mánaðarlegum greiðslum
á allt að tvöföldum þeim tíma
sem sparnaðurinn tók.
Styttu þér leið með spariláni.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna 1100 ár
L