Alþýðumaðurinn - 19.12.1996, Síða 5
Uppskriftirnar hennar Oktavíu
ALÞfÐOMAÐORINN
FIMMTUDAGUR19. DESEMBER 1996 - 5
Svínslæri og fleira gott
Allt tilbúið fyrir hátíðarmáltíð
Reykt svínslæri er herra-
mannsmatur sem lengi hef-
ur verið ómissandi á jóla-
borðum nágranna okkar og vina í
Skandinavíu. Hjá íslendingum hefur
reyktur svínshryggur, “hamborgara-
hryggur” notið mikilla vinsælda
undanfama áratugi og gerir enn, en
þó má segja að reykta svínslærið sé
á uppleið enda bæði bragðgóður og
drjúgur matur. Ekki spillir fyrir að
matreiðslan er einföld og lærið
geymist vel í kæli nokkra daga eftir
eldun.Fyrir þá sem langar að reyna
sig við lærið koma hér nokkur ráð
og leiðbeiningar.
Fyrst er að velja sér læri við hæfi,
sums staðar þarf að panta þau með
fyrirvara í verslunum eða hjá kjöt-
verkendum. Læri á að vera mögu-
legt að fá frá 6 kg þyngd og upp í 11
kg með beini. Veljið læri með góðu
fítulagi, annars verður kjötið þurrt
og bragðdauft.
En þá er komið að matreiðslunni.
Lærið er klætt í tvo steikingarpoka,
sem áður hafa verið hristir með ör-
litlu hveiti í, kalkúnapokar duga vel
fyrir læri af stærstu gerð. Pokunum
er síðan lokað vel og klippt nokkur
göt gegnum báða pokana að ofan-
verðu. Fituhliðin snýr upp og lærinu
er stungið í 175 C heitan ofn. Steik-
ingartíminn er u.þ.b. 30-40 mín. á
kfló, styttri tíminn er fyrir stór læri,
lengri tíminn fyrir lítil læri.
Þegar lærið er fullsteikt er það
tekið úr ofninum, hom klippt af
steikingarpokunum og kjötsafanum
hellt í skál. Pömnni er síðan flett af
lærinu og það snyrt.
Nú má borða lærið eins og það
kemur fyrir eða hjúpa það. Ágætur
hjúpur er t.d. 2 eggjarauður, 1 msk.
gott sinnep og 2 msk.
púðursykur sem hrært er
saman og smurt á lærið.
Yfir þetta er sigtað rasp
og brúnað undir grilli litla
stund, gætið að því að
ekki brenni.
Þegar sósan er búin til
þarf að fleyta fituna vel af
soðinu og þynna það með
vatni ef það er of salt.
Gott er að bragðbæta sós-
una með rifshlaupi, sýrð-
um og/eða ferskum
rjóma, soyasósu og jafn-
vel púrtvíni. Kjötkraft og
aromat má nota ef sósan
er lítið sölt. í meðalþykka
uppbakaða sósu þarf 3
msk. smjör og þrjár msk.
hveiti á hverja 5 dl. af
vökva. Á jólum þarf sjálf-
sagt u.þ.b. 1 dl. af sósunni
á mann ef lærið er aðal-
rétturinn en minna ef það
er borið fram með öðmm réttum.
Kartöfluglás
Margir vilja brúnaðar kartöflur
með heitu læri, en með köldu læri
og ýmsum reyktum mat er afbragðs-
gott að bera fram kartöfluglás. (f.
fjóra)
750 g mjölmiklar kartöflur
vatn
40 g smjör
3-4 dl mjólk
ldl rjómi
salt eða aromat og hvítur pipar,
graslaukur eða annað grænt
krydd eftir smekk
Kartöflumar era flysjaðar og
skomar í lsm teninga. Suðunni er
hleypt upp á kartöflunum í smá vatni
og þeim síðan hellt í sigti. Smjörið
brætt í þykkbotna potti og kartöfl-
unum velt vel uppúr. Mjólk og
rjóma bætt útí og látið malla við
vægan hita undir loki þangað til
kartöflumar era meyrar og byrjaðar
að jafriast, þær eiga ekki að sjóða í
mauk. Gott er að taka lokið af
síðustu mínútumar, einnig má bæta
í mjólk ef glásin verður of þykk.
Saltað og kryddað eftir smekk og
graslauk stráð yfir við framreiðslu
ef vill.
Ananasmeðlæti
Til tilbreytingar frá rauðkálinu
má reyna meðlæti með ananas og
kókosbragði. (f. sex.)
1 heildós ananas
2 dl kókosmjöl
11 rifnar gulrætur
2 msk sýróp
1 tsk salt
2 tsk kanell
safi úr einni sítrónu
1 dl olía
Ananasinn er skorinn mjög smátt
og öllu blandað saman, líka safanum
af ananasnum. Þessu er síðan hellt í
eldfast mót og bakað í ofni við 180-
200C í 30 mín. Gott heitt með köldu
reyktu kjöti.
Waldorfsalat
Valdorfsalat er gott með hvers-
kyns villibráð og ekki síður með
köldu reyktu kjöti. (f.fjóra.)
3-4 stönglar sellerí
2 epli - sítrónusafi
5o g majones eða 1 dl sýrður
rjómi
1 dl þeytirjómi
25-50 valhnetukjamar
nokkurvínber
Selleríið hreinsað, trefjar fjar-
lægðar og það skorið smátt. Eplin
flysjuð og skorin, vætt með sítrónu-
safa. Saxið valhnetumar en geymið
nokkrar í skraut. Rjóminn þeyttur og
honum blandað við majones eða
sýrðan ijóma. Eplum, selleríi og val-
hnetum er bætt varlega út í rjóma-
blönduna, sett í skál og skreytt með
heilum valhnetum og hálfum vín-
berjum.
Sherryfrómas
Sætir eftiréttir þykja ómissandi á
jólaborðið og hér kemur ágæt upp-
skrift af sherryfrómas. (f.átta.)
4 egg
4 msk sykur
6 matarlímsblöð
3 dl sætt sherry
5 dl þeyttur rjómi
150 g dökkt súkkulaði
Leggið matarlíniið í bleyti í kalt
vatn. Þeytið egg og sykur ljóst. Tak-
ið frá 3 msk af sherryi en bætið hinu
út í eggjahrærana. Vamið er kreist
úr matarlíminu og það síðan brætt í
sherryinu sem tekið var frá. Fingur-
volgri matarlímsblöndunni er hellt í
mjórri bunu út í eggjablönduna og
hrært vel á meðan. Að síðustu er
þeyttum rjóma og smáttbrytjuðu
súkkulaði bætt varlega saman við
með sleikju. Hrærið öðra hvora
þartil frómasið byrjar að stífna, þá
er því hellt í fallega skál eða ábætis-
glös. Skreytt með súkkulaði.
Jólaís
. Jólaísinn má ekki vanta og hér
kemur uppskrift af slíkum.
4 eggjarauður eða 4 egg
2 dl flórsykur
5 dl rjómi
Vanilla eða önnur bragðefni
eftir smekk.
Eggjarauður eða heil egg eru
þeytt vel með sykrinum og vanill-
unni. Rjóminn þeyttur og honum
blandað varlega samanvið. Saxað
súkkulaði, fyllt t.d. með piparmyntu
eða karameÚu, er ágætt til að blanda
út í hrærana, eirtnig ávaxtasafar og
líkjörar eftir smekk hvers og eins.
Gætið að því þegar ísinn er smakk-
aður til, að bragð dofnar við fryst-
ingu.
Vanillufs
Vanilluís, hvort heldur hann er
heimatilbúinn eða keyptur, bragðast
vel með heitri sósu og þessi hefur
aldrei bragðist.
2 dl rjómi
3 msk síróp
2oo g sykur- salt á hnífsoddi
100 g suðusúkkulaði
Sett í pott og soðið við vægan hita
þar til þykknar, u.þ.b. 20 - 30 mín.
Tekið af hellunni og 2 msk smjöri
og nokkram vanilludropum bætt útí.
Borið fram heitt.
Uppskriftimar er að sjálfsögðu
hægt að minnka eða stækka eftir
þörfum hvers og eins.
Verði ykkur að góðu.
Húsblínda,
útbreíddastí sjukdófflttr
meðal húseígenda.
Þama situr pabbi og Ies eða glápir á sjónvarpið.
Hann hefur þegar fyrstu einkenni húsblindu.
Sjúkdómurinn sljóvgar og gerir kariana kærulausa um
viðhald húsa sinna. Þekkir þú þessi einkenni? Ef svo er þá
Ieitaðu stuðnings fjölskyldunnar og yfirfarið það sem Iaga
þarf. Gerið síðan átak í viðhaldsvinnu. Það borgar sig
peningalega og einkenni húsblindunnar hverfa.
Byggingafulltrúinn á Akureyri
Óskum öllum bœjarbúum
gleðilegra jóla
og farsœldar á komandi ári
----------------------------------------------N
AKUREYRARB/CR
Aðstoðar-
slökkviliðsstjóri
Laus er til umsóknar staða aðstoðarslökkviliðs-
stjóra. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið
störf sem fyrst.
Umsækjendur þurfa að hafa tæknimenntun á há-
skólastigi með sérþekkingu á eldvörnum og örygg-
ismálum. Einnig þarf góða hæfileika til samskipta
og æskileg er reynsla af stjórnun og rekstri. Meira-
próf bifreiðastjóra og réttindi til sjúkraflutninga eru
nauðsynleg.
Aðstoðarslökkviliðsstjóri skal ásamt slökkviliðsstjóra
m.a. sinna daglegri stjórnun slökkviliðs- og sjúkra-
flutningaþjónustu, umsjón með eldvarnaeftirliti, fag-
legri ráðgjöf til hönnuða og þjálfun og fræðslu
starfsliðs.
Vinnutími er dagvinna virka daga og útkallsskylda
þar fyrir utan.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningi Stéttarfélags
tæknifræðinga og Akureyrarbæjar, Launanefndar
sveitarfélaga eða kjarasamningi verkfræðinga við
Akureyrarbæ.
Upplýsingar um starfið gefa slökkviliðsstjóri í síma
462 3200 og starfsmannastjóri í síma 462 1000.
Umsóknarfrestur er til 31.12. 1996.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyr-
arbæjar að Geislagötu 9, Akureyri.
Starfsmannastjóri.
Ó&kiim láðókiptammmi akkar
gleðileijrajála
agy far&ældar d kamandi ári.
iPökhmi móskiptm.
POSTUR OG SIMI
UMDÆMI 3