Samtíðin - 01.03.1937, Síða 18

Samtíðin - 01.03.1937, Síða 18
14 SAMTÍÐIN Guðmundur Daníelsson frá Guttormshaga: Sögubrot af ástinni Það er einkennilegt, hvað maður getur stunduiíi lifað lengi við vonina. Fyrsta október átti Svala að vera komin að norð- an, þvi þá byrjaði skólinn, og nú, 'tíunda desembéí, hafði ég enn ekki mist trúna á, að bún kæmi aftur einbvern daginn. — Eg var orðinn peningalaus og byrjað- ur að skulda. Blöðin keyptu líka ekki kvæðin mín lengur, því kaupendurnir höfðu hótað úrsögn, ef þau hættu ekki að birta slíkt. — Og mi hafði eg kynst nýrri stúlku. Hún hét Olga og var að vestan. Olga var jarphærð, og það var liér uni bil sú feitasta stúlka, sem eg hefi séð, en hún liafði fallegar hendur og þægilega rödd, og ]iað talaðist svo til milli okkar, einu sinni, þegar eg mætti henni á gatnamótum, að hún heimsækti mig eitthvert kvöldið, því eg væri altaf heima. Þessi sannleikur várð nú samt ekki al- veg óskeikull; mig var ekki altaf að hitta heima. Það reyndist mér um megn, að sitja lokaður innan auðra veggja, eftir að eg liætti að vinna fyrir méc. Iig reyndi að gera úr mér tvo menn og lét þá tala saman, en þeim tókst ekki að hafa hvor af fyrir öðrum; þeim leiddist og þeir hurfu hvor inii i ánnan á ný, eins og fyrir kemur i þjóðsögum. Eftir sat ung- ur maður með þöglar, lokaðar varir, en vilt og hrópandi augu, — hrópandi á hina lokkandi sýn, sem birtist þeini og hvarf þeim aftur, — eitt maíkvöld — eða einn júnidag fyrir óralöngu — eða hálfu ári. — það er sama. Þau hrópuðu: „Svala!“ Skammdegisvindur þaut við gluggann. Það var svarið. — Og síðan þögn. — „Djöfuls leiðindi, að vera til!“ tautaði eg og reis á fætur. ■— TJpp á efsta loft- inu i húsinu lá áttatíu ára gömul kona í kör og var blind. Hún átti níu börn og þrjátíu barnabörn, Þó lá hún þarna ein og beið eftir því, að guð gæfi sér dauð- ann, og gæfi sér lítið eftir dauðann, þar sem allir væru á besta aldri til eilífðar og enginn tapaði sjón. Eg hnfði einstöku sinnum komið þarna upp á loftið með Þuríði, þegar hún færði þeirri göiiilu matinn, og nú fór eg þang- að inn. Eg talaði við hana lengi og lofafði lienni að halda í höndina á mér, — „því það stafar frá þér kraftur," sagði hún og fanst lnin hressast við. Hún kunni sum- ar sögurnar hennar önunu göiiilu í Gröf, um álfa og þess háttar. Flestar voru þær skemtilegar. Eg spurði hana að einni sögunni lokinni: „Hefir þú annars nokkurn tíma vitað lil þess, að nokkur fái að iijóta þess hér i lífinu, sem hann þráir mest?“ Þetta féll alveg við efnið í frásögu hennar um álfameyjuna, og eg beið með hjartslætti eftir svari hennar. Hún lá á bakið, cins og búið væri að leggja hana til og svaraði: „Taktu nú eftir, drengur minn: Það kemur fyrir eitt augnablik i æfi hvers manns, hvort sem hann er menskur eða ekki, sem öll gæfa lians veltur á. Ef ])essu augnabliki er rétt varið, fer alt að ósk- um og maður nær i gullkistilinn, en ann- ars lokast álfahóllinn og opnast aldrei aftur; þar í liggur ógæfan.“ Svo þagnaði luin og horfði blinduni, næstuni því hvítum augunum, eitthvað ó- endanlega langt út i hina dularfullu heima handan við mínar skynjanir. Hún leit eins og vísdömsfult lík, þar sem hún lá, og mér fundust orð hennar örlögin sjálf. ■ „En hvernig getur maður þá þekt þetta augnablik frá qllum hinum?" livislaði eg hikandi og eftirvæntingarfullur. „Þess þarf ekki,“ svaraði lnin og lyfti

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.