Samtíðin - 01.03.1937, Síða 32
SAMTÍÐIN
28
sé ákafur. Honum leiðist doði og
slen. Slikur hópur er eins konar
höfuðlaus her. Ræðumaðurinn verð-
ur að gerast foringi hans.
Ef einliver í fámennum áhevr-
endahópi tekur fram i fyrir yður.
skuluð þér rökræða málið við liann
og svara honum kurteislega. En ef
einhver i fjölmennum hópi ætlar
að slá yður af laginu með því að
taka hastarlega fram i fyrir yður,
er ekki annað ráð vænna en að af-
vopna hann hæði fljótt og vel og
fullkomlega miskunnarlaust. Áheyr-
endur liafa gaman af slikum hnipp-
ingum, en vilja altaf, að ræðumað-
urinn heri hærra lilut.
— Það er haugalýgi! æpti Lloyd
George 8. ágúst 1918, er tekið var
fram í fyrir honum i breska þing-
inu. Röddin þagnaði óðara.
Komið kjarnanum í meginhugsun
yðar fvrir í einni lmitmiðaðri setn-
ingu og endurtakið hana síðan
þangað til hún hefir fest rætur í
hugum áheyrenda yðar.
Hvað sem öðru líður, legg ég
það til, að Ivarþagó sé lögð i eyði,
sagði Cato jafnan i liverri ræðu:
Og sjá: Ivarþagó var jöfnuð við
jörðu. Ahrif ræðumanns liafa náð
hámarki sínu, er hann getur látið
fjölmenni hlýða sér, eins og einn
maður væri.
Niðurlag í næsta hefti.
Faðirinn (við son sinn 7 ára
gamlan):
— Hvar fékstu þennan bíl?
— Hjá telpu út á götunni.
— Hvað sagði hún?
— Hún orgaði bara.
Hinirágætu Gefjunardúkar
fullnægja öllum þeim kröfum, sem frekast verða gerðar. Þeir
eru mjúkir og hlýir, en jafnframt snöggir, áferðarfallegir og
smekklegir.
Það er gagnslaust að tala um heilsuvernd, ef menn kunna
ekki að klæða sig í samræmi við það loftslag, sem þeir eiga
\ið að húa.
Föt úr íslenskri ull henta íslendingum best. —
Klæðaverksmiðjan Gefjun, Akupeyri
I
ÍJtsala á Laugav. 10, Reykjavík o,g í kaupfélögum um land alt.