Samtíðin - 01.11.1941, Síða 10
6
SAMTÍÐIN
Það ergir mig alltai' að sjá þá ryðjast
framhjá manni, hæði á götum úti
og annars staðar, sitja sem fastast í
sætum sínum í strætisvögnunum,
]5ótt kvenfólk standi, o. s. frv. Þetta
finnst mér nú, og ég býst við, að flest
kvenfólk,- ungt og gamalt, sé á sama
máli og ég. Kurteisi kostar ekki neitt.
Talið herst að lokum að' ástandi
því, er skapazt hefur við hernám
lands vors, og Ragna Fossberg segir:
—• Það er nú búið að tala svo mikið
um þetta blessað „ástand“, að ég
held, að það sé ekki hægt að segja
neitt meira um það, nema með því
að endurtaka eitthvað af því, sem
áður er húið að segja. Eg get því sagt
það alveg hreinskilnislega, að ég var
líka í „ástandinu“, eins og það er kall-
að. Stuttu eftir að hernámið fór fram,
kynntu hæði enskir og íslenzkir vin-
ir mínir hér mig nokkrum brezkum
liðsforingjum. Ég gal ekki séð neitt
rangt í ]>essu; hugsaði alls ekki um
það frá stjórnmálalegu sjónarmiði,
og fannst mennirnir ekkert öðruvísi
en við, þótt þeir töluðu ensku. En
eftir nokkurn tíma fór mér að skilj-
ast, að ])að litu ekki allir á þetta frá
sama sjónarmiði, og ég sá, að kynni
mín við þessa menn gálu orðið mann-
orði mínu skaðlfg. Ég þorði því ekki
annað en hætta í „ástandinu“, því
þótt það sé ef lil vill þröngsýni að
láta sér eklci á sama standa um al-
menningsálitið, meðan maður hefur
sjálfur hreina samvizku, ])á er það
ekki auðvelt í smábæ eins og Reykja-
vík. Ég veit, að margar stúlkur hafa
farið að eins og ég. Auðvitað veit ég,
að margar stúlkur eru vítaverðar
fyrir framkomu sína, en það eru tvær
hliðar á liverju máli, og oft er afar
erfitt að greina á m.illi þeirra.
Isleuxkir fug'lar
SAMTlÐINNI hefur borizt lítil hók
um íslenzka fugla, eftir Micliael
Bratby, enskan menntamann, sem
dvalizl hefur hér á landi undanfarna
mánuði. Bók þessi er 6 útvarpserindi,
sem höfundurinn flutti í brezka tím-
anuni í útvarpinu hér s.l. sumar í því
skyni, að kenna erlendum setuliðs-
mönnum hér að þekkja algengustu
fuglategundir á íslandi. Bók þessi er
mjög tímabær og þörf, með því að
sáralítið hefur verið ritað um íslenzkt
fuglalíf á enska tungu. Ber að þakka
höfundi það, að hann skuli hafa varið
tómstundum sinum til ]>ess að auka
þekkingu útlendinga á islenzku fugla-
lífi. Formála fyrir bókinni hefur rit-
að Major General H. 0. Curtis.
C-bætiefnið
er eins og menn vita vörn gegn skvr-
hjúgi, hinni ægilegu veiki, sem löng->
um þjáði Islendinga í hallærum og
lningri kúgunaraldanna. Skyrbjúgur
lýsir sér með blæðingum í húð og
undir henni, hlæðingum i liði, tann-
losi, þreytu og höfuðverki, en hin
fyrstu einkenni hans eru stundum
magnleysi.
Talsvert vottar enn fyrir þessari
ægilegu veiki í íslendingum. En sú er
hót i máli, að þjóðin hefur öruggai
varnir gegn henni með því að neyta
fæðu, er inniheldur C-bætiefni í rík-
um mæli, en ])ar lil má nefna mjólk,
kartöflur og grænmeti.