Samtíðin - 01.03.1957, Page 18
11
SAMTÍÐIN
I’eir hafa sagl frá því, að þeir Iiafi
orðið gagnleknir hlýjukennd og ó-
viðráðanlegri löngun lil að falla í
værau blund, eu jafnframt hafi þeir
reynt að hrinda frá sér þeirri til-
hugsun, að nú væru þeir að sofna
fyrir fullt og allt.
Reyndir læknar lýsa þeim and-
látum, sem þeir hafa verið sjónai’-
vottar að, mjög á söniu lund. Dr.
John A. Ryle, merkur enskur lækn-
ir, segir um dauðann i frægu brezku
tímariti um heilbrigðismál: „Dauð-
inn er mjög sjaldan kvalafullur og
ægilegur, nema í ímynd fólks og
tilhugsun.“ Hann segir, að menn,
er liafi verið hjargað úr bráðum
lífsliáska, minnist þess ekki, að þeir
hafi orðið hræddir, því að „í snöggri
hættu stuðlar sjálfshjargarmeðvit-
undin alltaf að því að útrýma
hræðslunni.“ Hundruð manna, sem
liorfzt hafa í augu við hráðan bana,
liafa skýrt ft'á því, að þeir hafi þá
fyrst verið gripnir hræðslu, er hætt-
an var um garð gengin.
Dr. Ryle hefur horft upp á mörg
dauðsföll í sambandi við loftárásir
Þjóðverja á London. Hann hefur
hvað eftir annað verið staddur í
sjúkrastofum, er alskipaðar hafa
verið helsærðum mönnum. „Nærri
því allir virtust sofa eða móka,“
skrifar hann. „Þeir, sem telja mátti
líklegt, að dæju, voru hvorki ang-
istarfullir né sárþjáðir. Þvert á
móti. Það eru þeir, sem kornast lil
heilsu aftur og lifa lengi, er verða
að þola alvarlegar þjáningar. Flest-
ir þeirra, sem deyja fljótt úr veik-
indum eða af sárum, vita aldrei af
neinu slíku.“
Dr. Ryle er ekki einn um þessa
skoðun. Sir William Osler, sem al-
mennt er talinn einn hinn merkasti
læknir, er uppi hefur verið, skrifar:
„É(g hef nákvæmar skýrslur um
andlát nál. 500 sjúklinga, bvggðar
á sérstökum athugunum á þvi,
hvernig dauðann beri að liöndum
og hvernig sjúldingarnir verði við
honum .... 90 þoldu líkamlegan
sársauka eða kvalir af einhverju
tagi, 11 voru kvíðafullir, 2 voru
blátt áfram skelkaðir, 1 komsl i
hrifningarástand, og 1 iðraðist
beisklega. En yfirgnæfandi meiri-
hluti þessa fólks lét ekki í Ijós nein-
ar sérstakar tilfinningar. Andlát
þess var, eins og fæðing þess hafði
verið, svefn og fullkomið meðvit-
undarleysi.“
„Jakob! Jakob!“ kallaði unga
konan ofan af loftinu.
Maður hennar varð dauðhræddur
um, að eittlwað væri að og hljóp i
loftköstum upp stigann. Þá sagði
konan:
„Já, sjáðu, svona hatt þarf ég
endilega að eignast strax i dag.“
Stína: „Ég legg ekki í vana minn
aS tala illa um annað kvenfólk. Þess
vegna minnist ég aldrei á Þóru.“
ÞEIM FJÖLGAR daglega, sem lesa
Samtiðina. Sendið okkur áskriftarbeiðn-
ina á bls. 2 og þér fáið árlega 10 hefti
fyrir aðeins 45 kr. og 1 eldri árgang í
kaupbœti.
ORLOF VÍSAR VEGIIMINI
FERÐASKRIFSTOFAN ORLOF H.F.
Hafnarstræti 21. Reykjavík. Sími 82265.