Samtíðin - 01.05.1957, Qupperneq 7

Samtíðin - 01.05.1957, Qupperneq 7
4. hefti 24. árg, Nr. 232 IVlaí 1957 TÍIVI/IRIT TIL SKEIVIIVITIJIXIAR OG FRÓÐLEIKS SAMTÍÐIN kemur út mánaðarlega nema í jan. og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Sigurð- ur Skúlason, Reykjavík, sími 2526, pósthólf 472. Afgreiðslusími 81985. Árgjaldið, 45 kr. (erl. 55 kr.), greiðist fyrirfi'am, Áskriftir miðast við siðustu áramót. Áskriftargjöld- um veitt móttaka i Bækur og ritföng hf., Austurstræti 1. — Félagsprentsmiðjan hf. SIGURÐUR SKÚLASDN: Mtábarg tslenzhra sjántanna er að rísa ÞRJÁR HÁBORGIR eru nú óðum að rísa á Islandi, reistar að verulegu leyti fyrir fé, sem alþjóð hefur látið af hendi rakna með eftirvæntingarkenndum fögn- uði: háskólahverfið á Melunum með safna- húsum o. s. frv., Vinnuheimili SÍBS að Reykjalundi með verksmiðju- og íbúðar- húsum — og Dvalarheimili aldraðra sjó- manna á Laugarásnum með dásamlegri útsýn yfir höfn, eyjar og sund. Þess mikla fjármagns, sem byggingarkostnaður þess- ara þriggja háborga nemur, er að veru- legu leyti aflað með sölu happdrættismiða. Fyrsta sunnudag næsta mánaðar verð- ur sjómannadagurinn haldinn í 20. sinn. Hann var upphaflega minningarhátíð um drukknaða sjómenn, en öðlaðist brátt líf- rænan tilgang. Hugmyndin um bygging Dvalarheimilis aldraðra sjómanna var rökrétt afleiðing þess, hve vel gekk að safna fé fyrsta sjómannadaginn. Þeirn sjóði, er þa myndaðist, bættust brátt stórgjafir og áheit. Þegar hann var orðinn tæpar 4 millj. kr., var hafizt handa um þygging hins mikla dvalarheimilis, sem nú setur orðið myndarsvip á byggð Laug- arássins norðanverðs. Er markvisst að því stefnt, að starfsemi heimilisins geti hafizt að mánuði liðnum. Happdrætti DAS hóf starfsemi sína 17. sjómannadaginn eða fyrir réttum þrem arum. Síðan hefur það greitt til bygg- ingarframkvæmda dvalarheimpiisjns 4.2 millj. kr. Vinsældir happdrættisins má nokkuð marka af því, að fyrsta árið gaf það út 30 þús. miða, annað árið 50 þús. og þriðja árið 65 þús. miða. Velta happ- drættisins hefur nú verið tvöfölduð, og verða vinningar þessa happdrættisárs 10 í hverjum flokki, þar á meðal 11 íbúðir, 1 einbýlishús, 24 bifreiðar, 2 bátar, 8 ferða- lög auk húsgagna, hljóðfæra og heimilis- (ækja. Happdrættið mun á komandi ár- um standa straum af byggingarfram- kvæmdum, sem áætlað er, að kosti um 20 millj. kr., og er af því ljóst, hvílíku Grettistaki því er ætlað að lyfta. Reynslan hefur sýnt, að ekkert fjáröfl- unarform til þjóðþrifaframkvæmda er íslendingum jafn geðþekkt og happdrætti. Ohugsandi er þvi, að sú vinsæla fjáröfl- unaraðferð verði í framtíðinni niður felld, einkum meðan svo margt er enn ógert hér, er til menningar horfir. Hins vegar orka síauknar skattaálögur sem þjakandi farg á framtakssemi fólks. ís- lenzka ríkið á því að efla happdrættin, er létta á vinsælan hátt byrðar ríkissjóðs. Skynsamlegra væri, að ríkið tæki held- ur nokkurn toll af happdrættunum en að hafa þann hátt á, að skaítleggja æ meir erfiði vinnufúsra þegna og lama þannig heilbrigða starfslöngun þjóðarinnar, er sízt má skerða.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.