Samtíðin - 01.05.1957, Side 13
SAMTÍÐIN
ð
sér, livort hún sé ófrísk, en af því
hefur hún miklar áhyggjur, Upplýs-
ingar eru ekki nægilegar til að úr-
skurða þetta. Einstöku fyrirspurnum
hréfsins má svara á þá leið, að kon-
ur hætta að missa hlóð mánaðarlega,
er þær verða ófrískar. Það, sem þú
talar um brjóstin á þér, þarf ekki að
vera sönnun þess, að þú sért þunguð.
Annars væri öruggast að skrifa
lækni, ef ekki næst til lians öðruvísi.
— Freyja.
Kjörréttur mánaðarins
FYLLTAR SMNAIvOTELETTUR.
Áætluð er ein þykk kóteletta á mann.
Kóteletturnar eru barðar lítið eitt, en
síðan er skorin rifa í þær endilangar
eins og vasi, og í hana er látið mauk
úr 1 matskeið af rúsínum og 1 msk.
af ristuðum ætisveppum. Vasanum
er svo lokað með nokkrum eldspýt-
um, kótelettunum velt upp úr tvíböku-
mylsnu og þær brúnaðar. Þá er ör-
litlu vatni liellt yfir og látið sjóða í
20 mín. Að þvi loknu eru kóteletturn-
ar settar á fat, en út i soðið er sett-
ur appelsínubörkur, saft úr 1 appel-
sínu, afgangurinn af rúsínunum og
ætisveppunum ásamt rjóma og tóm-
atkrafti, og er það horið fram sem
sósa. Soðnar kartöflur eru hornar
nieð og einnig rifið hvítkál eða rauð-
kál, ef til er. Það er rifið á grófu
rifjárni, og út i það er látið litið eitt
af hráum rifnum lauk, en þeyttur
rjómi saman við.
Sigurður Reynir Pétursson
hœstaréttarlögmaður.
Austurstræti 14 II. hæð. Sími 82478.
Handa fjórum er áætlað: 85 g rús-
ínur, 1 dós ætisveppar, 11/2 dl kjöt-
kraftur, 1 dl rjómi, j/o dl tómatkraft-
ur og 1 appelsína.
Eftirmatur: apríkósukaka. 3 msk.
smjör, 3 msk. hveiti, 1 bolli volg
mjólk, 14 bolli sykur, 4 eggjarauður,
1 bolli abríkósumauk, 5 stífþeyttar
eggjahvítur.
Þetta er hrært saman, en eggja-
hvíturnar síðan látnar varlega út í.
Deigið er látið í djúpt, vel smurt
form, sem er sykri stráð. Rakist i
liér um hil 3 stundarfjórðunga við
góðan hita. Gott er að bera þevttan
rjóma með vanillubragði með kök-
unni.
FRÆGIR OHÐSKVIÐIII
Fágun sumra manná fer fljótt af
þeim, ef þeir komast í áfengi.
Oft eru það þeir, sem njóta ham-
ingjunnar með þér, sem öfunda þig
mest.
Þú getur staðið uppréttur, þegar
þú sáir, en þegar uppskerutfminn
kemur, verðurðu að beygja þig.
Heimtaðu ekki af neinum það, sem
honum er um megn.
Mundu, að þegar þú bendir með
vísifingri á einhvern mann í ásökun-
arskyni, snúa þrír af fingrum þínum
alltaf að sjálfum þér.
ÞÚSUNDIR kvenna lesa kvennaþætti
Samtíðarinnar með vaxandi athygli. —
Sendið okkur áskriftarpöntunina neðst
á bls. 2 strax í dag, og við póstsendum
yður blaðið tafarlaust ásamt 1 eldri ár-
gangi í kaupbæti.