Samtíðin - 01.05.1957, Síða 15

Samtíðin - 01.05.1957, Síða 15
SAMTlÐIN 11 leyndardóm dauðu handarimiar, liafði hann ekki orð á því við nokk- urn mann. Svo var það einn sólskinsdag vorið ið eftir, að hann tók sér ferð á liend- ur og ók til þorpsins, þar sem hann hafði séð dauðu liöndina. Hús trésmiðsins var harðlæst, og þar hjó enginn maður frarnar. Það var autt og tómt að öðru levti en því, að fáein húsgögn úr húi gamla prests- ins, sem ekki þótti taka að hirða, höfðu verið slcilin þar eftir. Núver- andi prestur í þorpinu var ungur, einhleypur maður, sem leigði hjá einum af sóknarmönnum sínum. Aðkomupresturinn hað um leyfi til að mega líta inn í liúsið undir því yfirskyni, að hann væri að skoða það fyrir einn af vinum sínum, sem hefði hug á að fá þar leigt. Voru honum þá afhentir lvklarnir að þvi, og liann fór inn um aðaldyrnar. Myrkrið þarna inni og mygluþef- urinn, sem barst að vitum prests- ins, gerðu það að verkum, að hon- um sló fyrir hrjóst. Stundarkorn var hann svo miður sín, að hann gat ekki haft sig í það að ganga upp stigann og líta inn i litla lestrarherbergið uppi á loftinu. Ilann gekk því inn í setustofuna, gegnum borðstofuna og eldhúsið og var þá allt í einu staddur í litlu, koldimmu anddyri. Prestur kveikti á eldspýtu og kom þá auga á hálfopnar dyr niður að kjallaranum. Án þess að gera sér grein fyrir, hvert hann væri að fara, tók harin að klungrast niður gamlan og hrörlegan stiga, og áður en varði, var hann kominn niður í kjallara- lierbergi. Dauf hirta inn um óhrein- ar gluggarúður uppi undir lofti í herberginu gaf aðeins til kynna, að allt og sumt, sem þarna væri inni, væri hefilhekkur og kista með smíða- tólum. Að lokum fór prestur upp í skrif- stofuherbergið. Það var rykugt og tómt að öðru leyti en því, að á veggn- um gegnt eldstónni voru bókahillurn- ar með röð af dúfnaholum. Það, sem vakti athygli prestsins, var ásigkomu- lag veggjarins kringum bókahillurn- ar. Múrhúðunin hafði sprungið af veggnum alla leið frá gólfi til lofts, svo að alls staðar sá í bera viðina. Hinir veggirnir voru óskemmdir. „Þelta er víst vegna þess, að múr- húðuriin á þessum vegg var mörgum árum eldri en á hinum,“ sagði prest- ur uppliátt. Sagan lilýtur að hafa verið sönn.“ Veggurinn dró að sér óskipta at- hvgli hans, og hann stóð góða stund grafkvrr og einblíndi á hann alveg frá sér numinn. Bókahillurnar höfðu verið festar við vegginn, og fyrir ofan þær var nokkurra feta autt bil upp að loft- inu, þar sem múrhúðunin hafði sprungið og var dottin af. Prestur steig upp á aðra hilluna, vó sig upp á handafli og gægðist upp fyrir lrill- urnar inn í glufurnar, sem myndazt höfðu milli innviðanna og ytra borðs veggjarins. NIÐRI I KJALLARANUM handlék hann smíðatól — sömu verkfærin og húsasmiðurinn hafði notað. Það var orðið mjög áliðið dags, og í herherg- inu var niðdimmt og grafkyrrt. Uppi í gamla skrifstofuherberginu,

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.