Samtíðin - 01.05.1957, Qupperneq 17

Samtíðin - 01.05.1957, Qupperneq 17
SAMTÍÐIN 13 rvliklimenni 15 Fyrsta konan, sem hlaut Nóbelsverðlaun ÆVIATRIÐI hennar voru í stuttu máli þessi: Hún hét María Sklodovska og var fædd í Póllandi árið 1867. Hún kom til Parísar og hóf nám í Sor- bonne-háskólanum 1891. Fjórum ár- um seinna giftist hún Pétri Curie. Fyrri dóttir þeirra, Iréne, fæddist 1897. Ári seinna tókst frú Curie að efnagreina polonium og radium. Ár- ið 1903 voru þeim, manni hennar, henni og Henri Bequerel, veitt eðlis- fræðiverðlaun Nóbels í sameiningu. 1 desember 1904 fæddist þeim Curiehjónunum önnur dóttir, sem skírð var Eva. Tæpum tveim árum seinna, í apríl 1906, lézt Pétur Curie af slysförum. Frú María liélt þá ein- sörnul áfram vísindarannsóknum þeirra hjóna, og árið 1908 lét hún tilleiðast að takast á liendur prófess- orsembætti manns síns við Sorbonne. Varð hún fyrsti kvenprófessor við þessa virðulegu vísindastofnun, stærsta háskóla Norðurálfunnar. Árið 1911 voru henni veitt efna- fræðiverðlaun Nóbels, í það sinn einni. Þegar heimsstyrjöldin skall á 1914, beindi hún kröftum sínum að Röntgengeislum pg leysti af liendi fádæma mannúðar- og menningar- starf með því að koma upp Röntgen- þjónustu í hermannasjúkrahúsum. Frú Curie andaðist í júlí 1934. Þannig eru í örstuttu máli nokkur helztu atriði úr ævi einnar merkustu konu, sem sögur fara af, studd fáein- um ártölum. Við þessar staðreyndir verður hér aðeins bætt eftirfarandi orðum: María Curie var hugvitssnillingur, en hún var lika þeim hæfileikum gædd að kunna að lifa horgaralegu lífi, vera fyrirmyndar eiginkona og móðir, og það er meira en sagt verð- ur um öll séni. Hún átti sér þann hreinleik hugarfarsins, sem þekkir ekki soramennsku, livað þá óþokka- skap. Án mannkosta sinna hefði henni ekki tekizt að verða önnur eins dóttir, systir, eiginkona og móðir og raun varð á. En án snilligáfna sinna hefði hún heldur aldrei orðið sá vís- indamaður, sem raun her vitni, aldrei orðið hinn frægi, ómetanlegi félagi Péturs Curie, manns sins. Hún var yngst 5 barna. Faðir henn- ar var eðlisfræðingur og skólastjóri, móðir hennar, sem dó, þegar María var aðeins 11 ára, var engilfögur, gædd ríkri tónlistargáfu og miklu menntaðri en þá var titt um pólskar konur. Foreldrarnir voru báðir af hláfátækum, en tignum ættum, og öll voru hörn þeirra stórvel gefin. En María litla, sem var þeirra yngst, átti fyrir sér að klífa liátinda frægðar- innar, þvi að hún var, eins og áður er getið, fyrsta kona, sem gerð var að prófessor við Sorhonne, og fyrsta konan, sem vann Nóbelsverðlaun. Enginn hefur hlotið þau verðlaun oft- ar en einu sinni nema hún, og enn mætti það þykja í frásögur færandi, að dóttir hennar hlaut þessi verðlaun

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.