Samtíðin - 01.05.1957, Side 19
SAMTÍÐIN
15
ur og stofnun og rekstur radium-
stofnana í París og Varsjá. Þá var
hún og kvödd til fyrirlestrahalds i
háskólum viðsvegar um Bandarikin.
Á þeirri ferð varð hún að vinna fyrir
einu dýrmætu grammi af radium
handa Evrópu. Ferðin varð hinni ó-
framfærnu og yfirlætislausu konu á
allan hátt örðug. En ást hennar á
rannsóknum sínum, sem jafnvel
maður hennar hafði stundum efazt
um, að unnt yrði ^að leiða til farsæl-
legra lykta, veitti henni þrek i hverri
raun.
Allt til æviloka rækti hún skyldur
sínar og bar hina miklu ábyrgð, sem
örlögin liöfðu lagt henni á herðar,
með þeirri tign og þeim virðuleik,
sem henni var áskapaður. Alla ævi
var hún trúr nemandi á þeim æðri
sviðum mannlegrar þekkingar, sem
aðeins örfáum útvöldum er leyft að
lcynnast, áður en brautryðjendurnir
hafa varðað vegina. En jafntrú reynd-
ist hún ástvinum sínum i þrotlausri
umhyggju fyrir velferð þeirra. Hún
lézt, eins og áður er getið, árið 1934.
Banamein hennar var blóðsjúkdóm-
ur, sem kenndur var ofreynslu á
sviði radiumrannsóknanna. Þannig
fórnaði liún lífi sínu í þágu þeirra
vísinda, sem hún unni af alliug, og
alls þess fjölda fólks, sem ldjóta
skyldi blessun af þrotlausu erfiði
liennar.
MUNIÐ að tilkynnn Samtíðinni tatiu
laust bústaðaskipti til að forðast vansldl.
Freyju-vörur mæla meö sér sjálfar.
Veljið það bezta.
FREYJA H.F., sælgætis- og efnagerð
Lindargötu 12. Símar 4014 og 2710.
♦ ÞAÐ ER SAGT ♦
að falleg eiginkona sé góð í eina viku,
en góð eiginkona sé falleg ævi-'
langt.
♦
að eilíf bölsýni sé eins og sífellt rugg
í ruggustól. Það kann að veita
einhverja afþreyingu, en maður
jagast bara í söniu sporum.
♦
að í hvert sinn, sem ný hugmynd
kemur fram, vekist upp tíu menn,
sem allir liöfðu átt liana áður, en
gleymdu að koma henni í fram-
kvæmd.
♦
að erfiðasti áfanginn upp í efstu
tröppuna á stiganum sé gegnum
þessa sífelldu mannþröng, sem
hópast kringum hann.
♦
að meðal þeirra liluta, sem oftast
opnast í ógáti, sé munnurinn.
♦
að sumir karlmenn gifti sig, af því
að þá vantar tilfinnanlega ófáan-
lega vinnukonu.
♦
að það sé sök sér, þótt sagan endur-
taki sig, en lakara, ef menn end-
urtaki sömu sögurnar oft.
—★—
ÞEIM FJÖLGAR daglega, sem lesa
Samtíðina. Sendið okkur áskriftarbeiðn-
ina á bls. 2 og þér fáið árlega 10 hefti
fyrir aðeins 45 kr. og 1 eldri árgang i
kaupbœti.
MUIMIÐ
Nora Magasín