Samtíðin - 01.05.1957, Blaðsíða 28
24
SAMTÍÐIN
SKDPSÖGUR
„Mamma, viltu gefa mér að drekka,
um leið og þú kemur og flengir mig?“
MAÐUR NOKKUR var að bisa við
að sannfæra gamla konu og tilfærði
orðrétt kafla úr bréfi Páls postula til
Efesusmanna máli sínu til stuðnings.
„Ég skil, hvað þú ert að fara,“
sagði konan, „en hér hefur okkur
Pál minn postula bara alltaf greint
á.“
NONNI LITLI hafði verið sendur
óvenjulega snemma í rúmið. Nokkru
seinna kallar hann: „Mamma, gefðu
mér vatn að drekka, ég er alveg að
deyja úr þorsta."
Móðirin: „Farðu undir eins að
sofa, strákur, eða ég kem og flengi
þig.“
Nonni (eftir nokkra stund):
„I DAG prédikaði ég yfir heilli
asnahjörð," hvíslaði prestur nokkur
að vini sínum.
„Af því hefurðu kallað þá elsku-
lega bræður,“ svaraði vinurinn.
GAMALL PIPARSVEINN réð til
sín þjón og lagði honum vandlega
lífsreglurnar. Meðal annars sagði öld-
ungurinn: „Þér verðið umfram allt
að skilja samhengið í hlutunum.“
„Hvað eigið þér við?“ spurði
þjónninn.
„Jú, sjáið þér til. Þegar ég segi yð-
ur að leggja dúk á borð, eigið þér auð-
vitað að láta þar einnig diska, skeið-
ar, gaffla o. s. frv.“
„Nú, þá skil ég, hvað samhengið
er,“ svaraði pilturinn.
Máítt iitfj*
JÞt>tisltti%
J4Á
n/a^nuóóon
& Co.
Hafnarstræti 19 - Simi 3104